Hornfirska Skemmtifélagið og Þórbergssetur hlutu Menningarverðlaun 2006
Menningarverðlaun voru afhent í Nýheimum í gær og voru það Hornfirska Skemmtifélagið og Þórbergssetur hlutu Menningarverðlaun 2006. Í rökstuðningi með ákvörðun Mennignarmálanefndar segir: Hornfirska Skemmtifélagið er einn af hornsteinum menningarlífs á Hornafirði. Félagar í Skemmtifélaginu hafa af mikilli atorku og metnaði staðið fyrir söngdagskrá og blúshátíð. Starf þeirra hefur verið góð kynning fyrir Hornafjörð og gestir sem sækja viðburði Hornfirska Skemmtifélagsins koma víða að. Um Þórbergssetur segir í rökstuðningi: Þórbergssetur á vart sinn líka Íslandi. Setrið er glæsilegur minnisvarði en um leið miðstöð mikillar menningarstarfsemi þar sem bókmenntir, rannsóknir og ferðamál blandast á áhrifaríkan hátt. Þórbergssetur er vitnisburður um frumherjakraft, faglega nálgun og metnaðarfulla framsetningu. Útkoman er glæsileg og til sóma fyrir þá sem að hafa komið.
Einnig fór fram afhending styrkja og voru þeir eftirfarandi:
Bæjarráð veitti eftirfarandi aðilum peningarstyrki
- Björgunarfélag Hornafjarðar
- Ferðafélag Austur-Skaft.
- Bær í Öræfum - fornleifarannsóknir
- Fornleifafræðistofan v. rannsókna í Hólmi
- Fuglaathugunarstöð Suðausturlands
- Ungmennafélagið Máni vegna söguritunar
- Fimleikadeild Sindra vegna kaupa á áhöldum
- Félagsstarf aldraðra í Öræfum.
Æskulýðs- og tómstundaráð veitti styrkveitingar til eftirfarandi félaga
- Golfklúbbur Hornafjarðar
- Hestamannafélagið Hornfirðingur
- Umf. Sindri
- Umf. Máni
Styrkveitingar úr sérsjóði æskulýðs- og tómstundaráðs hlutu:
- Sveinbjörg Zophaníasdóttir til æfinga og keppnisferða
- Fannar Blær Austar Egilsson til æfinga og keppnisferða
- Hilmar Guðjónsson til æfinga og keppnisferða
- Arnar Guðjónsson til að auka færni sína í þjálfun í körfu og krakkablaki
Menningarmálanefnd veitti eftirfarandi félagasamtökum styrki:
- Leikfélag Hornafjarðar
- Kvennakór Hornafjarðar
- Karlakórinn Jökull .
- Samkór Hornafjarðar
- Barnakór Hornafjarðar
- Magnús J. Magnússon
- Leikhópurinn Lopi
- Lúðrasveit Hornafjarðar
- Listvinasjóður Hornafjarðar
- Bútasaumsfélagið ræmurnar
- Harmónikufélagið
- Braggabandið
- Gleðigjafar
- Leikhópurinn Máni



