Menning
Fiðlarinn á þakinu
Fiðlarinn á þakinu
Fiðlarinn á þakinu
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

01.02.2007

Fiðlarinn á þakinu

Söngleikurinn Fiðlarinn á þakinu í leikstjórn Ingunnar Jensdóttur verður frumsýndur í Mánagarði föstudaginn 2.febrúar kl 20:00 Það er Ungmennafélagið Máni í Nesjum sem stendur fyrir sýningunni ásamt Leikfélagi Hornafjarðar og Samkórnum og er leiksýningin sett upp í tilefni 100 ára afmælis Ungmennafélagsins Mána. Með aðalhlutverk fara sr. Sigurður Kr. Sigurðsson sem leikur Tevye mjólkurpóst, Ragnheiður Sigjónsdóttir leikur Goldu eiginkonu Tevye og eldri dætur þeirra þrjár leika Elín Haraldsdóttir, Maríanna Jónsdóttir og Fjóla Hjaltadóttir. Jóhann Moravek hefur útsett tónlist fyrir fimm manna hljómsveit og stjórnar hann hljómsveitinni. Kristín Jóhannesdóttir stjórnar kórsöng.

Ingunn Jensdóttir segir þetta vera afskaplega fallegt leikrit um gyðingana og vera byggt á sannsögulegum atburðum í lífi gyðinga í smá þorpi í Rússlandi um aldamótin 1900. Sagan er í sjálfu sér sorgleg, en í söngleiknum er dregið fram á léttan og skemmtilegan hátt hvernig fólkið þarf að takast á við miklar breytingar á aldagömlum venjum sínum. Tevye og Gólda eiga fimm dætur, sem er ekki óskastaða fyrir föður og það er hans hlutverk að samþykkja eiginmenn handa þeim, faðirinn hefur alltaf haft síðasta orðið, en nú eru tímarnir að breytast og það veldur margskonar árekstrum og ýmislegt annað kemur upp í þessu friðsæla þorpi, sem áður var.

Við erum afskaplega stolt yfir að geta mannað þetta 50 manna leikverk segir Ingunn, það er þrekvirki á ekki fjölmennari stað. Það er erfitt að rífa fólkið út úr stofum sínum frá sjónvarpinu og sumir mega ekki missa af þáttunum sínum og svo er handboltinn á versta tíma fyrir okkur, auk þess sem allir eru að sjálfsögðu uppteknir við störf sín og hafa oft þurft að leggja mikið á sig til að komast á æfingar, en þetta hefur allt tekist og þetta er góður hópur, sem ætlar sér að skila sínu vel. Andinn hér er mjög góður og þetta er óskaplega skemmtilegt, þetta sameinar svo vel fólkið sem margt hefur lítið þekkst áður og verða svo bestu vinir. Áður fyrr voru leikarar mest fólk innan leikfélaganna en í dag er þetta breytt, það er í rauninni ekki þeir sem eru starfandi í leikfélögunum sem eru í þessum sýningum, það er bara það fólk sem tekst að fá í þetta hverju sinni. Hér er mikið af góðu söngfólki og Samkórinn spilar stórt hlutverk í sýningunni ásamt mörgu öðru söngfólki. Við Hreinn Eiríksson hönnuðum leikmyndina og margir hafa komið að smíði hennar. Það er mikil vinna við uppsetningu á svona sýningu og mikið álag á fólkið meðan á stendur, maður getur þó aldrei tapað á að taka þátt í þessu og þaðan er margs að minnast sem gott er að eiga í minningasarpinum.

Ingunn Jensdóttir hefur leikstýrt um 40 leikverkum víða um land undanfarin 30 ár. Þetta er í í þriðja sinn sem hún setur Fiðlarann á svið.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica