Menning
Antik
Antik
Hljómsveitin Antik

31.01.2007

Kaffihúsakvöld hjá Nemendaráði FAS

Annað kvöld þ.e. fimmtudagskvöldið 1. febrúar heldur Nemendaráð FAS Kaffihúsakvöld í Pakkhúsinu. Að sögn Ragnars Fjölnissonar hjá Nemandaráði þá er kaffihúsakvöldið liður í fjáröflun þeirra fyrir opna viku Framhaldskólans. Í Pakkhúsinu verður boðið upp á kleinur, vöfflur og kökur ásamt kaffi og kakó. Þar mun verða lifandi órafmögnuð tónlist frá hljómsveitinni Antik sem þykir einstaklega skemmtileg hljómsveit og á sér stórann aðdáendahóp. Á kaffihúsakvöldinu verða einnig ýmsar aðrar uppákomur. Ragnar segir að nemendaráð muni kappkosta við að stemningin verði kósý og þægileg enda Pakkhúsið draumastaður til að koma saman og hvetur hann alla til að mæta enda allir velkomnir.

Kaffihúsakvöldið hefst kl.20:30 kostar 500 kr. inn.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica