Útlán bókasafnsins nærri 26 þúsund eintök
Á síðasta ári voru útlán í bókasafni Menningarmiðstöðvarinnar A-Skaft. tæp 26 þúsund eintök. Að sögn Guðnýjar Svavarsdóttur bókavarðar eru þetta aðeins færri útlán en árið 2005 en þá var metár í útlánum. Guðný segir að krakkarnir í Hafnar og Nesjaskóla séu mjög dugleg að lesa ef dæma má eftir útlánum í bókasöfnunum sem eru í skólunum. Vinsælasta og mest eftirsótta bókin núna er nýja skáldsagan Konungsbókin eftir Arnald Indriðason. Sögustundin hennar Ragnhildar Guðmundsdóttur fyrir 3-5 ára börnin, sem er einu sinni í viku yfir veturinn, er alltaf jafn vinsæl og meðan lesið er fyrir börnin eiga foreldrarnir notalega stund á safninu. Góð tölvuaðstaða er á safninu og er mikið notuð einkum af ferðamönnum og einnig af þeim sem eru tímabundið hér á staðnum.
Bókasafnið í Nýheimum hefur náð að þjóna því hlutverki sem því var ætlað og ekki síst að vera notalegur staður með frábæru starfsfólki sem tekur vel á móti viðskiptavinunum.


