Auglýsing um verkefnastyrki til menningarstarfs á Austurlandi
Menningarráð Austurlands auglýsir eftir nú eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis um menningarmál. Þeir styrkir sem verða veittir eru til menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu á Austurlandi. Ein úthlutun verður árið 2007, í byrjun mars. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Austurlandi geta sótt um styrki til margvíslegra menningarverkefna en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Áhersla við styrkveitingu 2007 verður samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað, nýsköpun á sviði lista- og menningarstarfs, verkefni sem miða að fjölgun starfa og verkefni sem stuðla að eflingu fagþekkingar á sviði menningar og lista.
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar. Ætlunin er að tilkynna um úthlutun í byrjun mars. Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Austurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðunni www.skriduklaustur.is/menning. Þar er einnig að finna stefnu sveitarfélaga á Austurlandi í menningarmálum, nýjar úthlutunarreglur og ýmsar aðrar upplýsingar fyrir umsækjendur. Styrkþegar frá síðasta ári verða að hafa skilað inn greinargerð skv. samningi til þess að þeir geti sótt um fyrir 2007 Allar nánari upplýsingar veitir Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi hjá Gunnarsstofnun, í síma 471-3230, 860-2983 eða með tölvupósti menning@skriduklaustur.is
Umsóknir skal senda í tölvupósti og í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Austurlands, pósthólf 123, 700 Egilsstaðir og á menning@skriduklaustur.is.



