4Klassískar í Nýheimum
Þriðjudagskvöldið 8.júlí heldur söngkvartettinn 4Klassískar, sem eru söngkonurnar Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Signý Sæmundsdóttir og píanóleikarinn Aðalheiður Þorsteinsdóttir tónleika í Nýheimum kl. 20. Aðgangseyrir er 1200 kr.
4Klassískar hafa starfað saman um tíma og haldið fjölda tónleika innan sem utan höfuðborgarsvæðisins. Síðastliðið vor fóru þær í tónleikaferð til Svíþjóðar og Danmerkur þar sem þær sumgu m.a. í Sorö þar sem þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson samdi hið ástsæla ljóð “Ég bið að heilsa” Fyrir rúmu ári gáfu þær út geisladiskinn "Fyrir austan mána og vestan sól". Í vetur héldu þær tónleika með yfirskriftinni Kvöldskemmtun á þorra við góðar undirtektir. Gaman verður að heyra sumardagskrá þeirra, sem eflaust verður gleðileg.



