Nýheimadagur á föstudag
Föstudaginn 24. nóvember frá kl. 12 og 17 verður haldin kynning á starfsemi og húsnæði þekkingarsetursins Nýheima. Allt frá því að Nýheimar hófu starfsemi sína árið 2002, hafa Nýheimar vaxið og dafnað og eru í dag eitt öflugasta þekkingarsetur landsins. Nýheimar eru ekki bara fallegt hús á Hornafirði heldur eru þeir sérhannað húsnæði og umgjörð um starfsemi þar sem verið er að vinna og sinna menningu, menntun, rannsóknum og nýsköpun. Nýheimar eru stór vinnustaður í samfélagi okkar og í dag eru 20 fyrirtæki eða stofnanir með starfsemi sína í húsinu og þar vinna um 40 manns. Nýheimar er eign okkar allra og öllum opið. Starfsmenn Nýheima bjóða gestum og gangandi að koma í Nýheima og kynna sér þá fjölbreyttu starfsemi sem fer fram í húsinu. Dagskrá hefst kl. 12. Boðið verður uppá kaffi og kleinur.
Nemendur Tónskólans skemmta gestum milli kynninga og nemendur Heppu- og Hafnarskóla kynna verðlaunuð nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefni og legóþrautabrautir. Lifandi jólalamb verður til sýnis og ómskoðun sýnd, eins verður til sýnis lifandi leturhumar og áll og kennsla í gerð jólakransa. Það verður því líf og fjör í Nýheimum á föstudaginn og eru allir hvattir til þess að skoða húsnæðið og kynna sér þá starfsemi sem þar fer fram.


