Menning
Björg Erlingsdóttir
Björg Erlingsdóttir
Björg Erlingsdóttir nýr forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

13.09.2006

Nýr forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

Björg Erlingsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Því starfi gengdi áður Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri. Björg er fædd í Reykjavík 1970, uppalin á Akureyri en hefur búið í Reykjavík síðustu ár. Hún er með B.A-próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands, Cand.Mag. próf frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð auk þess sem hún lauk prófi í Safnafræði frá sama skóla. Eftir nám í Svíþjóð tók við vinna á Listasafni Reykjavíkur en með vinnu hefur hún stundað meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Auk þess að vinna á Listasafni Reykjavíkur hefur hún unnið á sambýli fyrir fatlaða en hún hefur verið viðloðandi þann geira frá menntaskólaárunum á Akureyri.

Að sögn Bjargar eru mörg verkefni sem bíða enda starfsemi Menningarmiðstöðvar fjölbreytt og hún full tilhlökkunar að takast á við þau.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica