Menning
Þórbergssetur
Þórbergssetur
Þórbergssetur

04.09.2006

Hátíðaþing í Þórbergssetri

Þórbergssetur á Hala í Suðursveit opnaði formlega sýningarhúsnæði sitt þann 1. júlí síðast liðinn. Jöfn og góð aðsókn hefur verið að setrinu í sumar og um 4000 manns hafa komið í heimsókn og skoðað sýningar. Einnig hefur fjöldi fólks komið í setrið til að njóta veitinga og kynna sér þau verkefni sem Þórbergssetur vinnur að. Áberandi er hve margir spyrja um bækur Þórbergs, hvar þær séu fáanlegar og erlendir ferðalangar spyrja mikið um þýðingar á bókum hans. Ljóst er að framundan er afar spennandi starf sem lýtur að því að kynna verk Þórbergs betur fyrir erlendum gestum, en einnig að tengja verkefnið frekar sögu og menningu Suðursveitar. Í vetur verður hafist handa við að markaðssetja verkefnið fyrir nemendahópa, og segja má að óteljandi verkefni geti tengst þeim sýningum sem þegar eru komnar upp í Þórbergssetri.

Í tilefni af opnun Þórbergsseturs og byrjun á formlegri starfsemi í nýju og glæsilegu húsnæði efnir Þórbergssetur til hátíðaþings dagana 13. og 14 október næstkomandi. Dagskrá þingsins verður fjölbreytt og verður nánar auglýst síðar. Þar má nefna fyrirlestra um bókmenntir, og bækur Þórbergs, skemmtun af ýmsu tagi, upplestur og gönguferðir. Fullyrða má að dagskráin verði fjölbreytt og vonandi einhverjar óvæntar uppákomur og nóg af andlegu og líkamlegu fóðri.

Þeir sem hafa áhuga á að sækja hátíðaþing í tilefni opnunar Þórbergsseturs geta skráð sig hjá Þorbjörgu í síma 478- 1073 eða á netfangið tharn@simnet.is. Hægt verður að fá gistingu á Hala eða hjá öðrum ferðaþjónustuaðilum í Suðursveit. Dagskrá þingsins, skráning og frekari tilhögun verður auglýst síðar.

Það er gaman að koma í Suðursveit á haustin, skógurinn í Papbýlisfjalli skartar haustlitum, það er hressandi að fara til fjalla og ef að veður verður gott er miðað við að hluti af þinginu fari fram utan dyra. Kannski verður staldrað við og hlustað á nið aldanna við fornar rústir eða heilsað upp á gamla kunningja eins og Kvennaskálasteininn eða Prestastól. Eitt af markmiðum Þórbergsseturs er að stuðla að því að sögurnar lifi í Suðursveit og ævintýrin haldi áfram þannig að komandi kynslóðir eigi þess kost að kynnast einstöku náttúrufari sveitarinnar en um leið að njóta þeirra sagnasnilldar er einkennir verk meistara Þórbergs og Steinþórs bróður hans
Allir eru velkomnir á þingið sem verður nánar auglýst síðar

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica