Menning
Alþjóðleg sýning í pakkhúsinu
Alþjóðleg sýning í pakkhúsinu

11.06.2003

Alþjóðleg myndlistarsýning í Pakkhúsinu

Sambönd Íslands er alþjóðleg myndlistarsýning sem opnuð var í Pakkhúsinu á Höfn, Hornafirði 1. júní og stendur til 28. júní. Þetta er farandsýning á verkum er lýsa landi okkar og þjóð. Sýnendur eru alls 73 frá nítján þjóðum og er stærstur hluti þeirra erlendir listamenn, sem flestir hafa heimsótt Ísland, og íslenskir listamenn búsettir erlendis. Áhugi fyrir þátttöku í sýningunni varð einnig mikill meðal listamanna sem ekki hafa komið til Íslands en vildu ólmir fá að lýsa hinu ókunnuga landi sem heillar þá og þeir þrá og ætla sér að heimsækja í náinni framtíð. Fengu þeir því að bætast í hópinn.

Flestir gefa listamennirnir verk sín sem framlög til fyrirhugaðrar stofnunar smáverkasafns hér á landi. Skemmtileg bréfaskrif sem hafa farið fram á milli listamannanna og ummsjónarmanna hennar liggja frammi til sýnis fyrir sýningargesti.
Sýningin hefur viðkomu á fjórum stöðum á Íslandi. Pakkhúsið í Ólafsvík var fyrsti sýningarstaðurinn í júní 2002, enda þekkja flestir þátttakendur til jökulsins og kraftsins sem þaðan kemur og þótti gott að nýta hann til að ýta úr vör. Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, var annar sýningarstaðurinn í desember 2002. Pakkhúsið á Höfn Hornafirði er þriðji gestgjafinn og fjórði sýningarstaðurinn verður Safnahúsið á Húsavík í ágúst 2003.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica