Jass í Nýheimum á heimsmælikvarða
Nú um helgina, þ.e. sunnudagskvöldið 23.apríl mun djasshljómsveitin Útlendingahersveitin leika á tónleikum í Nýheimum. Segja má að hér sé á ferðinni stórskotalið íslenskra djassleikara. Í sveitinni eru Árni Egilsson bassaleikari, sem starfar í Hollywood og hefur leikið í hundruðum kvikmynda og Pétur Östlund trommuleikari sem starfar í Svíþjóð og er einn þekktasti djasstrommari Evrópu. Þá eru í sveitinni Þórarinn Ólafsson píanóleikari sem býr á Spáni og er þekktur í þarlendum djassheimi, Jón Páll Bjarnason gítarleikari sem allir þekkja og Árni Scheving víbrafónleikari sem leikið hefur með í öllum helstu djasshljómsveitum hér á landi, ýmist á víbrafón eða bassa. Þessi sveit lék hér á Höfn fyrir sex árum og koma nú aftur og hefja tónleikaferð sína um landið á Hornafirði. Að sögn Jóhanns Moráveks þá spilar sveitin bara á fimm stöðum á landinu og segir hann að það sé heiður fyrir okkur Hornfirðinga að vera einn þeirra staða.
Allir tónleikar Útlendingahersveitarinnar í þessari tónleikaferð verða teknir upp og verða gefnir út á geisladiski.
Tónleikarnir eru á vegum Djassfélags Hornafjarðar og Hornfirska skemmtifélagsins og eru styrktir af Listvinasjóði Hornafjaðrar og Menningarráði Austurlands
Tónleikarnir hefjast kl.20:00



