Menning
Hammondhátíð á Djúpavogi
Hammondhátíð á Djúpavogi
Hammondhátíð á Djúpavogi

19.04.2006

Hammondhátíð á Djúpavogi

Samantekt: Svavar Sigurðsson

Nágrannasveitarfélagið okkar Hornfirðinga, Djúpivogur hefur ráðist í hvert stórvirkið á fætur öðru síðastliðin ár. Yngsta afkvæmi þeirra mun klekjast út á sumardaginn fyrsta en það er Hammondhátíð sem samanstendur af 5 tónleikum sem haldnir verða á Hótel Framtíð og í Djúpavogskirkju. Á fimmtudag munu heimamenn sameinast á stórtónleikum á Hótel Framtíð, á föstudagur mun hið magnaða orgeltríó B-3 leika listir sínar á Hótel Framtíð, á laugardag mun hinn margrómaði tenór Bergþór Pálsson syngja við undirleik hammondsnillingsins Davíðs Þórs Jónssonar í Djúpavogskirkju. Landslið frábærra listamanna mun heiðra hammondorgelið með leik og söng og svo er það stolt heimamanna Þorleifur Guðjónsson sem er einnig í áhöfninni.

Að tónleikum loknum mun DJ RIGRIB halda uppi fjörinu fram eftir nóttu. Á sunnudag þess á milli sem Davíð Þór Jónsson leikur Goldberg tilbrigði J.S Bach ætlar hirðtónlistarmaður Djúpavogshrepps, Svavar Sigurðsson, að leika dúetta með Davíð sem spanna listasögu "drottningar hljóðfæranna" Forsala aðgöngumiða verður á Hótel framtíð miðvikudaginn 19.apríl frá kl. 17.00 til kl 22.00 Hægt verður að fá miða á alla viðburði á aðeins kr. 5000

Tónlistarfélag Djúpavogs vonast til að sjá sem flesta heimamenn !

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica