Menning
Bergþór, Þorgeir og Raggi Bjarna
Bergþór, Þorgeir og Raggi Bjarna
Hér er Bergþór Páls ásamt þeim Þorgeiri Ástvaldssyni og Raggi Bjarna (úr myndasafni)

24.03.2006

Glúntasöngvar á leið til Hafnar



Í byrjun apríl, nánar tiltekið miðvikudaginn 5. verður tónlistarviðburður í Nýheimum sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara . Þá mæta þeir félagar, Bergþór Pálsson og Ólafur Kjartan Sigurðarson á staðinn til að syngja svokallaða Glúntasöngva. Þetta eru bráðskemmtilegir söngvar og eru þeir félagar með píanósnillinginn Jónas Ingimundarsson með sér til að sjá um undirleikinn.
Bergþór Pálsson var hér síðast ásamt þeim Ragga Bjarna og Þorgeiri Ástvaldssyni síðasta sumar , Ólafur Kjartan söng einsöng með Karlakórnum Jökli s.l. vor og Jónas Ingimundarsson hélt frábæra einleikstónleika Nýheimum í síðasta mánuði.

Við munum gera Glúntasöngvum þeirra Bergþórs , Ólafs Kjatans og Jónasar betur skil þegar nær dregur.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica