Fengu sent aðgangskort að Jöklasýningunni
Allir íbúar Sveitarfélagsins Hornafjörður sem fæddir eru 1989 og fyrr hafa fengið sent aðgangskort að Jöklasýningunni á Hornafirði og gildir kortið á sýninguna fyrir handhafa þess. Þetta er liður í kynningarátakinu að íbúum sveitarfélags sautján ára og eldri er send þessi kort. Viðtökur sýningarinnar hafa verið afar góðar og jókst fjöldi gesta úr rúmlega fjögur þúsund árið 2004 í rúmlega sjö þúsund árið 2005. Guðrún Jónsdóttir menningar- og upplýsingafulltrúi segir það mikið gleðiefni að heimamenn hafa tekið sýningunni opnum örmum og jákvætt viðhorf þeirra gagnvart sýningunni sé mikilvægt ef vel á að takast. Þegar tekin var ákvörðun um endurbætur sýningarinnar lá ljóst fyrir að markmiðið var að sýningin yrði sjálfbær innan þriggja ára og til þess að svo megi verða þurfa minnst 15.000 gestir að greiða aðgang á ári. Það skiptir því miklu að kynna sýninguna sem víðast og það skiptir líka miklu máli að íbúar sveitarfélagsins taki þátt í því og hvetji gesti og gangandi til að skoða sýninguna.
Um páskana verður Skarphéðins á Vagnsstöðum minnst á Jöklasýningunni og í Pakkhúsinu, þar verður störfum hans gerð skil. Skarphéðinn tók m.a. þátt í nokkrum rannsóknarleiðöngrum á Vatnajökul og stundaði jökulmælingar í áratugi. Í Gömlubúð verða sýndar ljósmyndir sem Skarphéðinn tók og eru frá árunum 1930-1950 og munir og skjöl frá honum verða til sýnis í Jöklasýningunni.
Ef einhverjir íbúar sveitarfélagsins, komnir á tilgreindan aldur, hafa ekki fengið aðgangskort að Jöklasýningunni eru þeir vinsamlega beðnir að hafa samband við Guðrúnu í 478-2665 og þeir fá sín kort send.


