Jólasveinar heimsækja Gömlubúð
Það var uppi fótur og fit þegar jólasveinar birtust við Gömlubúð í gær á leið sinni frá fjöllunum. Það er orðinn árviss viðburður að jólasveinarnir koma við í Gömlubúð og biðu krakkarnir þar eftir komu þeirra og þegar þeir birtust á bakvið hól þá hlupu nokkrir krakkar á móti þeim . Jólasveinarnir léku, sungu og trölluðu með krökkunum. Þeir skoðuðu líka gamla dótið sem þeir sáu á safninu. Gluggagægir sagði að hann væri mjög hrifinn af gluggunum í Gömlubúð enda búinn að kíkja í gegnum þá í mörg mörg ár á leið sinni til byggða. Um 70-80 mans heimsóttu Gömlubúð í gær til að taka á móti jólasveinunum.
Að sögn Björns Arnarsonar safnvarðar þá verður Gamlabúð opin að nýju á nýju ári og var koma jólasveinana endapunkturinn á þessu frábæra ári í Gömlubúð.


