Dauði og jarðarber í Nýheimum
Grínharmleikur
Grínharmleikurinn Dauði og jarðarber verður sýndur í Nýheimum föstudaginn 19. ágúst. Leikurinn fjallar um tvo sígaunabræður sem búið hafa hjá ömmu sinni alla ævi. Bræðurnir komast að því sér til mikillar skelfingar á afmælisdag ömmunar að hún hefur geyspað golunni. Hæfileikar bræðranna hafa verið bældir niður af krafti af ömmu gömlu og hún staðið í vegi fyrir því að þeir geti látið drauma sína rætast. En nú er hún gamla amma dauð og bræðurnir þurfa ekki að búa á bænum lengur. Spurning um hvað tekur við? Á að halda búskap áfram að hætti ömmunar eða láta ferðaeðlið taka yfirhöndina og láta drauma sína rætast. Bræðrunum eru allir vegir færir eða hvað?
Dauði og Jarðarber er í leikstjórn Ágústu Skúladóttur sem er einhver vinsælasti leikstjóri íslendinga um þessar mundir, en hún var einmitt tilnefnd til þrennra grímuverðlauna í ár. Sem leikstjóri ársins fyrir leikstjórn verksins Klaufa og kóngsdætra, auk þess að vera tilnefnd tvisvar fyrir barnaleiksýningu ársins, en þær tilnefningar voru fyrir Klaufa og Kóngsdætur og Landið Vifra. Hún vann þau verðlaun fyrir Klaufa og Kóngsdætur. Ágústa mun á næsta ári verða fastráðin við Þjóðleikhúsið. Einnig var Ágústa valin besti lekstjórinn á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Act Now, sem haldin var á Akureyri dagana 22 ? 26 júní, fyrir leikstjórn sýningarinnar Memento Mori.
Leikarar verksins eru Gunnar B. Guðmundsson og Snorri Engilbertsson. Gunnar hefur frá árinu 1994 leikið , leikstýrt og tekið þátt í fjölda sýninga. Á árunum 2003 ? 2004 leikstýrði hann alls átta sýningum með hinum ýmsu leikhópum og lék sjálfur í fjölda sýninga. Gunnar var valinn besti leikarinn á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Act Now fyrir hlutverk sitt í Dýragarðssögunni. Gunnar hefur m.a. unnið Eddu-verðlaunin fyrir stuttmynd sína Karamellumyndin en hún vann sem besta stuttmynd ársins 2003. Snorri Engilbertsson hefur fengið góða dóma fyrir leik sinn í hinum ýmsu verkum síðustu ár. Snorri lék árið 2004 í fjölda sýninga, m.a. Hárinu. Auk þess leikstýrði hann Hamskiptunum e. Kafka á síðasta ári.
Sýningin hefst kl. 18.00.



