Menning
Sandur
Sandur
Sandur

27.07.2005

Sandur

Ljósmyndasýning Sigurðar Mar Halldórssonar í sandi við Horn í Hornafirði

Föstudaginn 29. júlí, kl.17 opnar Sigurður Mar Halldórsson ljósmyndasýningu í landi Horns í Hornafirði. Sýningin verður á sandinum við Stokksnesveg og nefnist einfaldlega Sandur. Myndirnar voru teknar á svipuðum slóðum síðasta sumar og verður komið fyrir á sandinum. Þær falla því inn í umhverfið og skera sig úr í senn. Sýningasalurinn er einstakur í sinni röð, rennisléttur og svartur sandurinn er gólfið, jöklar á aðra hönd og sæbrött fjöllin á hina og úthafsaldan leikur endalausa sinfóníu undir.

Þó sýningin sé nýstárleg á margan hátt er myndefnið sígilt, nakinn konulíkami. Sumarið 1997 hélt Sigurður svipaða sýningu í Hallormsstaðaskógi. Þar voru myndirnar teknar í skóginum og sýndar á sama stað og þær voru teknar. Sýningin Sandur er því einskonar framhald á því verkefni.

Þetta er fjórða einkasýning Sigurðar en hann hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sandur hefur verið Sigurði viðfangsefni fyrr. Sumarið 2002 tók hann þátt í alþjóðlegri samsýningu, CAMP-Hornafjörður, þar sem hann sýndi verkið Skeiðarársandur.

Sigurður stundaði ljósmyndanám í Lindholmens Gymnasium í Gautaborg 1988 til 1990 og lauk sveinsprófi í ljósmyndun í kjölfarið. Áður var hann ljósmyndari á Þjóðviljanum 1985-1988 og hefur starfað sjálfstætt sem ljósmyndari, grafískur hönnuður, ritstjóri og fleira.

Einkasýningar:
2005 Pakkhúsið Höfn. Hornfirðingar
1997 Veðrin eru tæmd - ljósmynda- og ljóðainnsetning í Hallormsstaðaskógi
1994 Caffi Brazil á Egilsstöðum
1992 Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum

Samsýningar:
2002 CAMP-Hornafjörður - samsýning 25 listamanna frá Íslandi, Danmörku, Bretlandi og Þýskalandi - sýningarstjórn
1990 Planket - Ljósmyndasýning í Vitaberksparken í Stokkhólmi
1990 Fria bilder - Samsýning 13 ljósmyndanema í Gautaborg
1987 90 ára afmælissýning Blaðamannafélags íslands í Listasafni ASÍ

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica