Menning
Vorhátíð FAS
Vorhátíð FAS
Anna Halldórsdóttir og Björk Pálsdóttir voru meðal þeirra sem kynntu sér starfsemi FAS á Vorhátíðinni um helgina.
Mynd 1 af 2
1 2

18.04.2005

Undirritun samstarfsamnings milli Menningarmiðstöðvar og FAS

Laugardaginn 16. apríl var undirritaður samstarfssamningur á milli Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS). Skólinn og sveitarfélagið ætla á næstu tveimur árum að efla menningarstarf og afþreyingu ungs fólks á aldrinum 16-25 ára í skólanum og sveitarfélaginu öllu. Leitað verður eftir samstarfi við alla sem koma að æskulýðs-, tómstunda og menningarmálum í héraðinu. Menningarmiðstöð Hornafjarðar mun sinna þessu verkefni í samráði við ungt fólk á svæðinu og nemendur í FAS.

Lögð verður áhersla á að styðja við frumkvæði og drifkraft unga fólksins með því að aðstoða það við skipulagningu og fjármögnun einstakra viðburða og verkefna.

Sjá Samning (pdf)

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica