Frumsýning á Súperstar
Fréttatilkynning
Laugardaginn 16. apríl nk. frumsýnir Leikfélag Hornafjarðar í samvinnu við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu og Tónskóla Austur Skaftafellssýslu söngleikinn "Súperstar" Eins og allir vita er söngleikurinn byggður á söngleik Webbers og Rise "Jesus Christ Superstar" 21 leikari og söngvari taka þátt í sýningunni og er sá hópur blanda af ungum nýliðum og eldri reynsluboltum. Allir leikarar sýningarinnar eru nemendur í FAS. Þess má til gamans geta að í kórnum eru foreldrar leikara, kennarar leikaranna og aðrir. Æfingar hófust um miðjan febrúar og hefur verið æft af fullum krafti síðan. Sýnt er í Mánagarði, en nokkuð miklar breytingar hafa verið gerðar þar svo að hann henti betur undir sviðslistir.
Mikill styrkur er af samvinnuverkefni af þessum toga og eru allir aðilar sammála um að þetta verði ekki í seinasta skipti sem að það gerist.
Leikstjóri sýningarinnar er Gunnar Sigurðsson, ljósahönnun er í höndum Sigurðar Keisers og tónlistarstjóri er Jóhann Morávek. Útfærsla undirleiks og undirleikur er í höndum Heiðars Sigurðssonar , Sigurðar Mars Halldórssonar og Friðriks Jónssonar.
Næstu sýningar verða sunnudaginn 17. apríl og miðvikudaginn 20. apríl.
Við hvetjum alla til að bregða sér í Mánagarð og sjá þessa stórkostlegu sýningu!!
Leikfélag Hornafjarðar, Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu, Tónskólinn í A-Skaftafellssýslu



