Menning
Sigurdur-Einarsson-malverk
Sigurdur-Einarsson-malverk
Málverk eftir Sigurð Einarsson alþýðumálara (úr myndasafni)

25.03.2005

Málverkasýning í Pakkhúsinu um helgina

Nýlega gaf Sigurður Menningarmiðstöð Hornafjarðar málverkasafn sitt, alls 298 málverk af ýmsum stærðum og gerðum. Í Pakkhúsinu um páskahelgina hefur verið sett upp lítil sýning á 20 af þessum verkum. Sigurður er Mýramaður, fæddur 1918, ættaður frá Holtum og Einholti. Hann hefur lengst af búið á Selfossi ásamt konu sinni Sigríði Bjarnadóttur frá Hólabrekku á Mýrum. Sigurður vann jafnt til sjós og lands en lengst af við Mjólkurbú Flóamanna eða í 25 ár. Þau hjónin eignuðust 11 börn sem öll eru á lífi. Sigurður er nýlega fluttur í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Hveragerði. Áhuginn á myndlistinni kviknaði þegar abstrakt-málverkið kom fram á sjónarsviðið. Þá fór Sigurður að sækja myndlistarsýningar og þar hefur hann eflaust safnað ýmsu í sarpinn. Hann fylgdist líka með samtímalistinni og sjálfur segist hann hafa gengið rækilega í sarp hjá Gunnari Erni, nú búsettum að Kambi í Rangárvallasýslu.

En hér er líka gaman að geta þess að Gunnar Örn hefur verið nefndur arftaki Svavars í litameðferð og djörfung. Sigurður byrjaði ekki að mála fyrr en á efri árum, þegar hann var að mestu hættur vinnu. Hann var hvattur af ýmsum til að halda því áfram. Sigurður notar olíuliti ýmist á striga eða masónít. Hann er hugfanginn af náttúrunni og þjóðtrúnni, sem hann tvinnar saman með heillandi litrófi og glaðbeittri fantasíu. Að sögn Sigurðar var það honum kappsmál að sýna fram á hve mikilvægt það er fyrir eldra fólk að leggjast ekki í dróma á þessum aldri. Að hætta að vinna á meðan heilsan er enn í lagi og beina orkunni í nýjan og skapandi farveg.

Pakkhúsið er opið yfir páskahelgina frá kl. 14 til 18 en eins og fram hefur komið hér á vefnum þá heldur einnig Svanhvít Kristjánsdóttur glerlistakona sýningu í Pakkhúsinu og tilvalið að líta við, njóta listar og þiggja kaffi á staðnum.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica