Menning
Frá afhendingu menningar- og umhverfisverðlauna
Frá afhendingu menningar- og umhverfisverðlauna
Frá afhendingu menningar- og umhverfisverðlauna
Mynd 4 af 7
1 2 3 4 5 6 7

07.03.2005

Úthlutun styrkja og tilnefningar menningar- og umhverfisverðlauna

Menningar- og umhverfisverðlaun Hornafjarðar voru veitt og afhent sl. föstudag. Menningarverðlaunin í ár hlaut Gísli Sverrir Árnason fyrir öflugt og farsælt starf við uppbyggingu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og uppbyggingu menningarmála á Austurlandi og á landinu öllu með formennsku sinni í Menningarráði Austurlands og í stjórn Safnaráðs. Umhverfisverðlaunin hlaut Elín Sigríður Harðardóttir fyrir langt og farsælt starf að umhverfismálum í sveitarfélaginu.

Styrkir sem bæjarráð veitir fengu:
Björgunarfélag Hornafjarðar
Slysavarnarfélagið Kári
Skógræktarfélagið
Félag aldraðra
Fjölskylda Rafns Eiríkssonar vegna varðveislu á kvikmynda efni Rafns
Nemendafélag FAS
Fuglaathugunarstöðin

Styrki veittir af æskulýðs- og tómstundaráði:
Umf. Sindri
Umf. Máni.
Golfklúbbur Hornafjarðar
Hestamannafélagið Hornfirðingur
Dansklúbburinn Taktur
Litboltafélag Hornafjarðar
Harmóníkufélag Hornafjarðar
Lúðrasveit Hornafjarðar

Styrkir veittir af menningarmálanefnd:
Karlakórinn Jökull
Kvennakór Hornafjarðar
Samkór Hornafjarðar
Gleðigjafar - kór aldraðra
Leikfélag Hornafjarðar
Leikhópurinn Lopi
Magnús J. Magnússon
Þorsteinn Sigurbergsson
Listvinasjóður Hornafjarðar
Fornleifafélag Öræfa.

Að venju hlutu verðlaunahafar veglega blómvendi, styrkþegar fengu rauða rós, einnig þeir sem tilnefndir voru en komust ekki í úthlutun Afhendingin fór fram í Nýheimum og á meðan sú athöfn stóð yfir voru sýndar kvikmyndir úr safni Rafns Eiríkssonar, gamlar myndir úr Hornafirði sem vöktu mikinn áhuga viðstaddra. Börn úr Tónskólanum fluttu nokkur lög undir stjórn Jóhanns Moravek

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica