Menning
Rúna og Gísli í Æfintýri á gönguför
Rúna og Gísli í Ævintýri á gönguför (úr myndasafni)
Rúna og Gísli í Ævintýri á gönguför (úr myndasafni)

02.03.2005

Auglýsing um verkefnastyrki til menningarstarfs

Menningarráð Austurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og Menntamálaráðuneytisins um menningarmál. Veita á styrki til menningarstarfs á Austurlandi. Ein úthlutun verður árið 2005, í apríl. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Austurlandi geta sótt um styrk til margvíslegra menningarverkefna, en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Áherslur við úthlutun 2005 verða; atvinnusköpun á sviði lista, samstarf og efling liststarfsemi ungs fólks. Umsóknarfrestur er til og með 31mars. Ætlunin er að tilkynna um úthlutun um miðjan apríl. ( með fyrirvara um breytingar ). Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Austurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðunni www.skriduklaustur.is/menning.

Þar er einnig að finna stefnu sveitarfélaga á Austurlandi í menningarmálum, úthlutunarreglur og ýmsar aðrar upplýsingar fyrir umsækjendur. Styrkþegar frá síðasta ári verða að hafa skilað inn greinargerð skv. samningi til þess að þeir geti sótt um fyrir 2005.

Allar nánari upplýsingar veitir Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi hjá Gunnarsstofnun, í síma 471-3230, 860-2983 eða með tölvupósti menning@skriduklaustur.is

Umsóknir skal senda, í tölvupósti og í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Austurlands, pósthólf 123, 700 Egilsstaðir og menning@skriduklaustur.is.

Þess má geta að Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi verður á skrifstofu Menningarráðs í Nýheimum miðvikudaginn 10.mars n.k. frá kl. 17-19 til viðtals fyrir þá sem vilja.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica