Menning
Jólatónleikar Unga Fólksins
Jólatónleikar Unga Fólksins
Frá jólatónleikum í fyrra sem haldnir voru í Nýheimum (@SMH)

15.12.2004

Sannkölluð jólastemning og góð tónlist í Nýheimum,

Jólatónleikar unga fólksins verða haldnir í Nýheimum annað kvöld Dagskráin samanstendur af fjölbreyttri jólatónlist fluttri af ungum hornfirskum tónlistarmönnum. Tónleikarnir voru fyrst haldnir í fyrra og tókust vel. Þá fluttu ýmsir tónlistarmenn atriði fyrir fullum sal í Nýheimum. Það má því sannarlega búast við skemmtilegri dagskrá í kvöld og ekki síðri en í fyrra. Þeir sem koma fram eru meðal annars hljómsveitin Aghmed og stúlknabandið Bleikar skóreimar, Parketmeðlimirnir Stjáni og Röggi, trúbadorarnir Eysteinn og Ingi Steinn, söngkonurnar Hulda Rós og Sigríður Bára, sigurvegari söngvakeppni Þrykkjunnar Ragnar Ægir Fjölnisson og Birgir Fannar Reynisson sem er jafnframt kynnir kvöldsins ásamt Elvu Dröfn Sigurjónsdóttur.

Góðir hljóðfæraleikarar koma líka fram meðal annars Hrafn Eiríksson, sem leikur á píanó, flautuleikarar og fleiri. Það má því sjá að atriðin eru ekki af verri endanum og eitthvað við flestra hæfi.
Rétt er að nefna að tónleikarnir eru framtak unga fólksins; það stendur fyrir tónleikunum sjálft með stuðningi frá Menningarmiðstöðinni í Nýheimum.

Unga fólkið býður alla hjartanlega velkomna á jólatónleikana meðan húsrúm leyfir, fimmtudagskvöldið 16. desember. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og kostar aðeins 700 kr inn. Ágóðinn rennur til félagsstarfs ungs fólks á Hornafirði.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica