Sameiginlegur fundur menningarmálanefndar Hornafjarðar og Djúpavogs í Löngubúð á Djúpavogi
Í gær héldu menningarmálanefnd Hornafjarðar og menningarmálanefnd Djúpavogs sameiginlegan fund í Löngubúð á Djúpavogi. Tilefni fundarins var að treysta tengsl á milli þessara aðila og ræða ýmis samstarfsverkefni sem til greina kemur að vinna að. Fundinn sátu Hermann Hansson, Bryndís Hólmarsdóttir, Guðlaug Hestnes og Ágústína Halldórsdóttir úr menningarmálanefnd Hornafjarðar auk Gísla Sverris Árnasonar forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Hjalta Þórs Vignissonar framkvæmdastjóra stjórnsýslusvips Hornafjarðar. Fulltrúar Djúpavogs voru Hrönn Jónsdóttir, Berglind Einarsdóttir, Erla Ingimundardóttir og Nína Jónsdóttir úr menningarmálanefnd Djúpavogs auk Björns Hafþórs Guðmundssonar sveitarstjóra Djúpavogshrepps.
Fram kom á fundinum að öflugt menningarlíf er á báðum stöðunum en tiltölulega lítill samgangur milli þeirra. Var samþykkt að vinna að því á næstunni að kynna viðburði á báðum stöðunum svo fólki gæfist betra tækifæri til að sækja t.d. tónleika og sýningar milli staða. Jafnframt verður farið yfir þau verkefni sem helst kemur til greina að staðirnir vinni sameiginlega að á menningarsviðinu.
Menningarmálanefnd Djúpavogs stefnir að því að endurgjalda heimsókn Hornfirðinga á nýju ári.


