Menning
Wijnen, Winter & Thor
Wijnen, Winter & Thor
Hollensk/Íslenska Jazztríóið Wijnen, Winter & Thor

03.11.2004

Wijnen, Winter Thor með tónleika á Hótel Höfn

Tónleikar í tilefni nýrrar plötu frá Hollensk/Íslenska Jazztríóinu Wijnen, Winter & Thor verða haldnir á Hótel Höfn sunnudagskvöldið 7. nóvember. Tríóið skipa þeir Andrés Þór gítarleikari, Bob Wijnen sem leikur á Hammond orgel og trommarinn Rene Winter. Skemmtileg blanda af jazzi og fönki og ýmsu þar á milli. Tríóið hefur verið starfandi síðan sumarið 2002 og hafa þeir félagar leikið saman víðsvegar í Hollandi á undanförnum árum auk þess að hafa komið til Íslands til að troða upp og nú síðast á Jazzhátíð Reykjavíkur veturinn 2003 við góðar undirtektir. Leikur hefst klukkan 21:00. Tónleikar sem enginn má missa af.


Wijnen, Winter & Thor

Wijnen, Winter og Þór var stofnuð sumarið 2002 og hófu þeir félagar Bob Wijnen (orgel), Rene Winter (trommur) og Andrés Þór (gítar) strax að leika á mörgum helstu jazz og tónlistarklúbbum í ?heimaborg? sinni, Den Haag. Eftirspurnin vatt uppá sig og fóru þeir að leika víðsvegar í Hollandi við góðan orðstír í borgum eins og Amsterdam, Mastricht, Rotterdam og Utrect svo eitthvað sé nefnt. Haustið 2003 léku þeir félagar einnig á jazzhátíð Reykjavíkur þar sem tónleikar þeirra voru einnig kvikmyndaðir fyrir Amerísku sjónvarpsstöðina Black Entertainment Television eða B.E.T og hljóðritaðir fyrir Ríkisútvarpið. Hlutu þeir góða dóma gagnrýnanda og áheyrenda hérlendis fyrir þá tónleika.
Veturinn 2003 léku þeir áfram af miklum krafti í Hollandi og var stefna og stíll hljómsveitarinnar þá orðinn fullmótaður en þeir félagar leika skemmtilega blöndu af ?straight ahead? Hammondjazz með sterkar rætur yfir í fönk og grúv tónlist.
Í mars 2004 héldu þeir félagar í hljóðver sem var staðsett skammt frá Rotterdam í gömlum sveitabæ sem búið var að endurhanna og gera að afbragðs hljóðveri á gamla móðinn. Þar hljóðritaði sveitin öll sín bestu lög sem nú er að koma út á diski. Af því tilefni efna þeir félagar til nokkra útgáfutónleika á völdum stöðum og verða þeir fyrstu á Hótel Höfn, sunnudagskvöldið 7. nóv. Kl. 21:00 í samvinnu við Menningarmiðstöð Hornafjarðar.

Andrés Þór er fæddur 27.12.1974 í Reykjavík.
Byrjaði í gítarnámi 12 ára gamall í tónlistarskóla Hafnarfjarðar og hefur stundað tónlistarnám síðan þá. Andrés Þór tók burtfararpróf frá tónlistarskóla FÍH í maí 1999. Árið 2001 hóf hann nám við Hið Konunglega Conservatory í den Haag í Hollandi og lauk Bachelorgráðu frá þeim skóla 31. Mars 2004. Andrés hefur leikið með mörgum af helstu jasstónlistarmönnum Íslands og má þar nefna: Sigurð Flosason, Tómas R. Einarsson, Matthías Hemstock, Jóel Pálsson, Gunnar Hrafnsson, Jóni Páli Bjarnarsyni og Kristjönu Stefánsdóttur. Andrés hefur einnig leikið með mörgum þekktum hljóðfæraleikurum í Hollandi á borð við Bob Wijnen, Uli Glazman og Simon Righter, einnig hefur hann leikið með Ameríska tenórsaxafónleikaranum Michael Brecker ásamt stórsveit The Royal Conservatory á tónleikum í tónleikasal ráðhúss Den Haag borgar.
Hann var gítarleikari hljómsveitarinnar Sixties frá 1994 til 1997 og lék inn á 4 hljómdiska með þeirri hljómsveit auk þess að ferðast vítt og breitt um landið með þeim og leika á dansleikjum.
Einnig hefur Andrés staðið fyrir jasstónleikum undir eigin nafni víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu og við og við utan þess. Lék á Jasshátíð Reykjavíkur haustið 2000 með eigin kvartett og hélt tónleika á jassklúbbnum Múlanun haustið 2000 og vorið 2001. Lék ásamt félögum sínum úr Hollensk/Íslenska tríóinu Wijnen, Winter & Thor (stendur fyrir Þór) á jazzhátíð Reykjavíkur í nóvember 2003. Andrés hefur á undanförnum árum spilað víðsvegar í Hollandi, Belgíu, Luxemburg og Þýskalandi með hinum ýmsu sveitum.

Bob Wijnen (1971) er einkar fjölhæfur tónlistarmaður og leikur á píanó, hljómborð, Fender Rhodes og Hammond orgel. Hann útskrifaðist með virktum frá Konunglega Listaháskólanum í Den Haag árið 19998. Hann er um þessar mundir starfandi í mörgum mismunandi hljómsveitum frá eigin píanótríói til stórsveita, jazzi yfir í fönk og allt þar á milli. Hann hefur starfað með Jean ?Toots? Thielemans, Peter King, Ferdinand Povel, Ack van Rooijen, Jerry van Rooijen, Bob Mintxer, Eric Vloeimans, Jarmo Hoogendijk, Benjamin Herman, Jasper Bloom, Fay Claassen auk margra annarra. Hann starfar núna með West Coast Big Band, Wijnen, Winter & Thor Tríó og söngsveitinni Jazzed To The Max. Hann hefur einnig kynnst spilamennsku í leikhúsum og kabarettum (besti undirleikarinn á Amsterdam Kleinkunst Festival 1998, lék undir með söngvara/lagahöfundi Paul Passchier). Honum var sérstaklega hrósað af Michel Petrucciani og Toots Thielemans fyrir leik sinn á Fender Rhodes rafpíanóið.

Rene Winter er fæddur í Groningen, Hollandi þann 02.02 1971.
Hann byrjaði 10 ára gamall að leika á sneriltrommu í lúðrasveit og skipti yfir í trommusett þegar hann var 16 ára, og hóf þá að spila opinberlega alls kyns tónlist(popp,rokk og jazz) í kringum heimabæ sinn. 22 ára gamall flutti hann til den Haag til að nema jazztrommuleik við hið Konunglega Conservatory. Þar nam hann undir leiðsögn Clarence Becton, Erik Ineke og Marcel Serierse. Einnig sótti hann tíma hjá Jeff Hamilton, Joe LaBarbera, Art Taylor og mörgum öðrum gestakennurum við Conservatoryið.
Árið 1999 lauk Rene námi og hóf að starfa sem atvinnutónlistarmaður í Hollandi og nágrenni Hollands.
Rene er fastur meðlimur í hljómsveitum eins og: Bob Wijnen Trio, Wijnen, Winter & Thor Trió, West Coast Big Band, og Kvartett Lils Machintosh (sigurvegari Edison verðlauna árið 2000).
Rene hefur leikið með mörgum af helstu jazztónlistarmönnum Hollands og má þar nefna til að mynda: Ferdinand Povel, Ack van Rooyen, Jarmo Hoogendijk, Jesse van Ruller, Rob van Kreefeld, Frans Elsen, Hein van der Geijn, Ben Herman, Ben van der Dungen, Jan Menu og mörgum öðrum auk þess að hafa leikið með alþjóðlegum spilurum eins og til dæmis: Benny Bailey, Phillip Harper(The Harper Brothers, Art Blakey´s Jazz Messengers), Deborah Carter og Debby Sledge(SisterSledge).

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica