Menning
Listaverk eftir Margréti Jónsdóttur
Listaverk eftir Margréti Jónsdóttur
Listaverk eftir Margréti Jónsdóttur sem sýnt var á sýningunni Hönnun og handverk (úr myndasafni).

03.11.2004

Handverk og hönnun 1994 - 2004

Laugardaginn 6. nóvember verður 10 ára afmælissýning HANDVERKS OG HÖNNUNAR opnuð í Pakkhúsinu, Höfn í Hornafirði. Afmælissýningin er haldin í tilefni þess að verkefnið er tíu ára um þessar mundir. Valnefnd var skipuð til að velja sýnendur á þessa sýningu. Markmiðið með sýningunni er varpa sýn á stöðu handverks, listiðnaðar og hönnunar á Íslandi í dag. Nefndina skipuðu Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Eyjólfur Pálsson hönnuður og Guðný Magnúsdóttir leirlistamaður. Á sýningunni er bæði hefðbundinn listiðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni. Sýningin var fyrst sett upp í Reykjavík, svo í Listasafni Árnesinga, Hveragerði, þá í Norska húsinu, Stykkishólmi, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ, í Ketilhúsinu á Akureyri og að Skriðuklaustri. Sýningarferðalaginu mun nú ljúka í Pakkhúsinu Höfn í Hornafirði. Vegleg sýningarskrá er gefin út að þessu tilefni.

Þeir sem sýna eru: Anna Guðmundsdóttir, Arndís Jóhannsdóttir, Ástþór Helgason, Dýrfinna Torfadóttir, Fríða S. Kristinsdóttir, George Hollanders, Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir, Guðrún Indriðadóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Helgi Björnsson, Hulda B. Ágústsdóttir, Jóhanna Svala Rafnsdóttir, Jón Sæmundur Auðarson, Kjartan Örn Kjartansson, Kolbrún Björgólfsdóttir, Kristín Sigfríður Garðarsdóttir, Lára Gunnarsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Ólöf Erla Bjarnadóttir, Philippe Ricart, Tó-Tó: Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir, Unnur Knudsen og Þorbjörg Valdimarsdóttir.
Sýningin stendur frá 6. til 14. nóvember og er opin um helgar frá 13.00 til 18.00.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica