Tónleikar í Nýheimum
Næstkomandi laugardag verða tónleikar á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í Nýheimum, að þessu sinni eru það Þórunn Elín Pétursdóttir sópran og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir píanóleikari sem heiðara okkur Hornfirðinga. Á efnisskránni eru tónverk eftir fjölmörg þekkt tónskáld sem eru Atli Heimir Sveinsson, Sigfús Einarsson, Sigvaldi Kaldalóns, Páll Ísólfsson, Jón Ásgeirsson, Georg Friedrich Händel, Johann Sebastian Bach og Charles Gounod, Wolfgang Amadeus Mozart, Rudolf Sieczynski og Johann Strauss.
Þórunn Elín Pétursdóttir, sópran, stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Elísabetar Erlingsdóttur. Þaðan lauk hún B. Mus. prófi í vor.Veturinn 2002?2003 var hún skiptinemi við Universität der Künste í Berlín. Aðalkennari hennar þar var prof. Ute Niss, en einnig sótti hún söngtíma hjá Beatrice Niehoff. Þórunn Elín fór með hlutverk Saffiar í uppsetningu Óperustúdíós LHÍ og Íslensku Óperunnar á Sígauna-baróninum í apríl síðastliðnum. Hún hefur sótt mörg námskeið í söng, m.a. hjá Joy Mammen, Franco Castellana, Karan Armstrong og Mörthu Sharp. Þórunn Elín hefur sungið með nokkrum kórum, m.a. Háskólakórnum, Söngsveitinni Fílharmóníu og Mótettukór Hallgrímskirkju. Hún hefur komið fram sem einsöngvari við ýmis tækifæri. Auk tónlistarnáms stundaði Þórunn Elín nám við Háskóla Íslands, þaðan sem hún hefur B.A. próf í uppeldis-og menntunarfræðum og heimspeki, auk kennsluréttinda. Samhliða söngnum starfar hún sem tónmenntakennari.
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, píanóleikari er fædd og uppalin í Suður-Þingeyjarsýslu. Hún hóf tónlistarnám átta ára gömul á Grenivík. Á menntaskólaárunum lærði hún á píanó hjá Helgu Bryndísi Magnúsdóttur í Tónlistar-skólanum á Akureyri og hóf einnig nám í orgelleik hjá Birni Steinari Sólbergssyni. Árið 1997 fluttist hún svo til Reykjavíkur þar sem hún stundaði kirkjutónlistarnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar og píanónám í Tónlistarskólanum í Reykjavík, hjá Jónasi Sen. Orgelkennarar hennar voru Hörður Áskelsson og Kári Þormar. Hún útskrifaðist með kantorspróf árið 2000 og einleikarapróf árið 2003. Hún hefur sótt meistaranámskeið bæði heima og erlendis hjá Hans-Ola Ericsson, Mathias Wager, Daniel Roth, Jon Laukvik og fleirum.
Sigrún hefur starfað sem organisti, kórstjóri og píanókennari.
Tónleikarnir hefjast kl.14:00 á laugardeginum í Nýheimum.



