Menning
Píanósnillingurinn Liene Circene
Píanósnillingurinn Liene Circene

06.09.2004

Píanósnillingurinn Liene Circene í Nýheimum

Næstkomandi fimmtudag mun hinn frábæri lettneski píanóleikari, Liene Circene halda tónleika í Nýheimum. Á efnisskrá tónleikanna eru m.a. verk eftir Beethoven og Rachmaninov. Liene lék í fyrsta sinn á Íslandi fyrir u.þ.b. ári síðan og vakti verðskuldaða athygli fyrir fágaðan leik, leiftrandi flutning og frábæra túlkun og tækni. Í gagnrýni dagblaðanna mátti þá meðal annars lesa þetta: "Liene ræður yfir frábærri tækni er skyggði aldrei á tónlistina sem flaut syngjandi úr flyglinum fram í sal til áheyrenda." "Þetta voru hreint frábærir tónleikar á heimsmælikvarða sem boðið var upp á í Salnum þetta kvöld". Mbl. 26.10.03

"Einkennandi fyrir spilamennskuna var gríðarleg styrkleikabreidd, mun meiri en maður á að venjast, allt frá fínlegustu blæbrigðum upp í svo voldugan og kraftmikinn hljóm að maður varð gersamlega dáleiddur." "Hún er einhver besti píanóleikari sem hér hefur komið fram." DV 21.10.03. Tónleikarnir byrja kl.20:00 og er aðgangseyrir kr.1500.-

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica