Jass-tónleikar í Nýheimum
Á Mánudagskvöldið 16. ágúst verða Jass-tónleikar í Nýheimum kl. 20:00 með söngkonunni Martinu Freytag ásamt Birni Thoroddsen, gítarleikara og Jóni Rafnssyni, bassaleikara. Martina er í heimsókn á Íslandi í ágúst og mun halda nokkra tónleika á þessu tímabili, m.a. á jazzdögum á Akureyri, á Höfn í Hornafirði og í Reykjavík (Hótel Borg og á Menningarnótt Reykjavíkurborgar). Tríó Björns Thoroddsen mun annast undirleik á tónleikum Martinu hér á landi og á dagskránni eru nokkrar íslenskar útsetningar. Martina Freytag er ung og upprennandi söngkona sem hlotið hefur fjölmörg verðlaun og alþjóðlegar viðurkenningar fyrir lagasmíð og söng. Hún vann aðalverðlaun Jass-hátíðarinnar í Leipzig 1994 og fékk verðlaun fyrir Outstanding Work in Jazz Education of the International Association of Jazz Educators Kansan, sem afhent voru árið 2000 í New Orleans.
Martina fæddist árið 1969 í Austur-Þýskalandi og stundaði tónlistarnám við Músíkháskólann í Weimar, við American Institute of Music, í Vínarborg og Berklee College of Music í Boston(USA). Undanfarin ár hefur Martina búið í Freiburg í Breisgau þar sem hún kennir jass söng við tónlistarháskóla í Basel og Freiburg. Hún hefur samið og flutt fjöldann allan af eigin verkum, einkum jasstónlist, og haldið tónleika m.a. í Hamborg, Berlín, Chemnitz, Gera, Leipzig, í Sviss og Bandaríkjunum. Á undanförnum árum hefur hún gefið út nokkra CD-diska sem fengið hafa lofsamlega dóma hjá gagnrýnendum og hún hefur einnig unnið kennslubækur í jasssöng.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Martinu www.martina-freytag.de
Björn Thoroddsen þarf vart að kynna en hann hefur um árabil verið í fremstu röð íslenskra djassleikara og gefið út fjölmargar hljómplötur. Eftir að hafa lært hér heima fór Björn til Los Angeles og lauk námi frá Guitar Institude of Technology árið 1982. Björn hóf ferilinn sem rokkleikari en brátt tók djassinn völdin og á fyrst plötum sínum undir eigin nafni og með hljómsveitinni Gömmunum er tónlistin í stjörnumerki djass- rokksins, en á síðari árum hefur djassleikur hans orðið æ klassískari. Hann hefur leikið með fjölda hljómsveita og mörgum heimsþekktum tónlistarmönnum en hann hefur þó fyrst og fremst haldið úti eigin hljómsveit (Tríó Björns Thoroddsen) sem hefur m. a. ferðast um öll Norðurlöndin.
Á Höfn munu 2/3 hlutar hljómsveitarinnar koma fram með Martinu, þeir Björn og Jón Rafnsson, bassaleikari.



