Málverkasýning með meiru
Í tilefni þess að Rafn Eiríksson hefði orðið 80 ára þann 15. ágúst nk. mun fjölskylda hans í samvinnu við Menningarmiðstöð Hornafjarðar opna yfirlitssýningu á verkum hans að Hafnarbraut 36 (Gamla bókasafninu). Rafn var fæddur og uppalinn að Miðskeri í Nesjum. Rafn stundaði nám í myndlistardeild Handíðaskólans í Reykjavík en lauk kennaraprófi árið 1950 og helgaði eftir það ævistarf sitt uppfræðslu barna og ungmenna.
Hann var kennari við Nesjaskóla frá 1950, í fjögur ár áður en hann tók við embætti skólastjóra, sem hann gegndi til ársins 1987.
Á þessum tíma vann hann ötullega að félagsmálum í héraðinu og myndlistaráhugi hans fékk útrás í gerð leiktjalda í skólastarfinu og einnig með leikfélaginu. Hann hafði alla tíð mikinn áhuga á ljósmyndun og kvikmyndum og starfaði lengi sem fréttamaður sjónvarpsins á fyrstu árum þess. Fjölskyldan hefur látið setja kvikmyndir hans á VHS-spólur og verður hægt að skoða sýnishorn af því efni. Sýningin verður opin frá 15. til 22. ágúst, alla daga frá kl. 16 til 21, nema síðasta daginn, sunnudaginn 22. ágúst verður hún opin frá kl. 14 til 17. Allir velkomnir.



