Menning
Eysteinn Sindri (mynd:FAS)
Eysteinn Sindri (mynd:FAS)

12.08.2004

ÚFFF … Ungt fólk; fjör og framtak

Vikuna 15. – 21. ágúst verður þétt afþreyingardagskrá í boði, þar sem ungt fólk (og fleiri) sýnir svo sannarlega hvað í því býr. Á dagskránni verða þjóðlagatónleikar, jasstónleikar, leikrit, klassískir tónleikar, myndlistargjörningur, málverkasýning, gamlar fréttamyndir frá Hornafirði og síðast en ekki síst frumsýning á nýrri hornfirskri bíómynd. Flytjendur dagskrár eru Hornfirðingar, Austfirðingar, Reykvíkingar, Norðmenn og Þjóðverji. Fólk á öllum aldri er hvatt til að njóta þess sem í boði er og fylgjast með dagskránni sem auglýst er nánar í öllum hornfirskum miðlum.

Að úfff-dagskránni standa FAS og nemendafélag skólans, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar, Tónskóli A-Skaftafellssýslu og Leikfélag Hornafjarðar. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Austurlands.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica