Menning
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson

17.07.2004

Dagskrá á vegum Þórbergsseturs á Hala

Þegar ekið er eftir Steinasandi í Suðursveit, framhjá Kálfafelli í átt að Steinafjalli, blasir Staðarfjall eða Papbýlisfjall við í norðri eða norðvestri. Fyrir 100 árum sat Þórbergur Þórðarson þar yfir fráfærulömbum í fjóra daga ásamt fleiri ungum mönnum af Sunnansandabæjunum, eins og siður var á þeim tíma. Þórbergur tálgaði í þessari hjásetu lítinn kross úr birkigrein, fór með upp í fjallið í svonefndan Garðhvamm og reisti hann þar. Krossinn hans Þórbergs hefur nú geymst undir tveimur hellum í Garðhvammi í hundrað ár. Smalamenn á göngum sínum um fjöllin, reistu alltaf krossinn við og létu hugann reika til liðins tíma.

Enginn veit af hverju Þórbergur, þá sextán ára gamall, tálgaði krossinn eða kaus að skilja hann eftir í óbyggðum. Nú sjást aðeins nokkrar tréflísar undir hellunum og á að bjarga þeim frá eyðingu og varðveita þær á Þórbergssetri, er fram líða stundir

Sunnudaginn 25. júlí er fyrirhugað að afhjúpa varanlegan kross og vígja
merkta gönguleið upp í Garðhvamm. Athöfnin hefst klukkan 14:00 í
Staðarfjalli. Stutt dagskrá verður við byrjun gönguleiðarinnar, en síðan verður farið
upp í Garðhvamm. Gangan þangað tekur u.þ.b. klukkustund og er hæst farið í
um 280 metra hæð. Þar verður einnig stutt dagskrá, gengið að barmi Klukkugils og dvalið um stund í stórbrotnu umhverfi þar sem yfir sveimar dulúð ævarfornra sagna.

Mæting er við sumarhúsin á Klifatanga kl:13:00. Aðeins er fært á jeppum í
Staðarfjall og verður fólk ferjað inn eftir, ef þörf krefur. Allir eru velkomnir, þeir sem ekki treysta sér í fjallgöngu geta skoðað sig um undir neðan í Staðarfjalli. Þar er margt að sjá og gaman að dvelja.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica