Ísland að innan og utan
Þvermenningarleg kortlagning: Ísland að innan og utan er heiti á 10 daga vinnustofu myndlistarmanna sem vinna með tölvur við sköpun sína. Vinnustofan fer fram í Nýheimum á Opnu húsi miðvikudaginn 7. júlí frá kl. 20-22. og eru Hornfirðingar hvattir til að koma og kynnast því hvernig tölvur og staðsetningartæki eru notuð til listsköpunar og ekki síður að fá tæknilegar upplýsingar um möguleika nýrrar samskiptatækni. Vinnustofan er ein 6 vinnustofa sem fara fram víðs vegar í Evrópu undir heitinu Trans-Cultural sem stýrt er af RIXC í Riga í Lettlandi.
Þátttakendur í vinnustofunni á Íslandi koma frá Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Lettlandi, Bretlandi, Hollandi, Kanada, Bandaríkjunum og Íslandi. Í forsvari fyrir vinnustofuna á Íslandi er Páll Thayer. Eins og nafnið “Ísland að innan og utan” gefur til kynna, er markmið þessarar vinnustofu að rannsaka og kortleggja Ísland inni í landi og einnig á hafi út við strendur landsins. Þar sem vinnustofan fer að hluta fram á fjarlægum slóðum sem bjóða ekki upp á hefðbundnar nettengingar, verður nauðsynlegt að rannsaka ýmsar fjarskiptalausnir. Þar af leiðandi verður lögð töluverð áhersla á tæknilegu hlið staf- og rafrænna lista og unnið að gerð og þróun sérhæfðra lausna fyrir listræna/menningarlega, sameiginlega, gagnvirka kortlagningu.
Almenningi er gert kleift að fylgjast með vinnustofunni í gegn um ýmsar vefsíður. Gagnvirkt kort mun sýna hvar við höfum verið og hvar við erum í rauntíma og hægt er að skoða ýmis skjöl sem tengjast ákveðnum punktum á kortinu svo sem myndir, hljóð, ljóð o.s.frv. Einnig er tilkynninga- og fréttaskráningakerfi þar sem verða færðar inn ýmsar vangaveltur og upplýsingar um gang ýmissa sérverkefna.
Vefslóðir sem tengjast verkefninu
Veftenglar - Vinnustofur eru á vegum:
Ellipse - FR
Trondheim Electronic Arts Center - NO
Piknik Frequency Organisation - FI
Project Atol - SL
K@2 - LV
Aðrir tenglar
Trans-Cultural Mapping
RIXC í Riga í Lettlandi
Páll Thayer er Í forsvari fyrir vinnustofunni á Íslandi



