Menningarmiðstöð eignast ljósmyndasafn Jóhönnu V. Arnbjörnsdóttur
Menningarmiðstöð Hornafjarðar eignaðist nýverið ljósmyndsafn Jóhönnu V. Arnbjörnsdóttur sem hefur að geyma myndir sem hún hefur tekið víða og á ljósmyndastofu sinni á 12 ára tímabili. Myndasafnið hefur að geyma ýmsar myndir svo sem af mannlífi, landslagi, skóla- og bekkjamyndir ásamt myndum af viðburðum eins og Skeiðarárhlaupinu 1996. Safn Jóhönnu hefur mikið heimildargildi, hefur að geyma mjög dýrmætar heimildir í rúman áratug í sögu þessa byggðarlags, og er það aðal tilgangur þess að Menningarmiðstöðin eignaðist það. Myndir úr safninu verða gerðar aðgengilegar þeim sem þess óska og einnig verður mögulegt að fá eftirtökur af myndum Jóhönnu.
Menningarmiðstöðin hefur einnig verið að taka við stórum ljósmyndasöfnum eins og ljósmyndasafni Eyrstarhorns sem nær frá stofnun blaðsins árið 1983. Í því safni eru einnig eldri myndir sem blaðið eignaðist í gegnum tíðina og spanna þær myndir marga áratugi. Eitt af hlutverkum Menningarmiðstöðvarinnar er að taka að sér varðveislu myndasafna og með því tryggja varðveislu ómetanlegra heimilda.



