Sænskir tónlistarmenn í Nýheimum
Næstkomandi fimmtudagskvöld 1. júlí kl. 20:30 munu sænskir tónlistarmenn flytja tónlist í Nýheimum. Á þessum tónleikum verður flutt tónlist frá endurreisnartímabilinu en þess háttar tónlist heyrist ekki oft á Austurlandi. Flytjendurnir eru þrír tónlistarmenn frá Svíþjóð sem spila á upprunaleg hljóðfæri. Það eru þau Annette Taranto messosópran, Sven Aberg sem spilar á lútu og vihuela, sem er spænskt strengjahljóðfæri og Björg Ollén á þverflautu. Tónlistin sem þau flytja er kölluð „Musica Humana“. Í gömlu ítölsku ljóði, frottola, eru eftirfarandi línur: "Io son l'ocel che con le debil ali mi sforzo di salir al bel planeta", sem í lauslegri þýðingu útleggst: „Ég er fuglinn sem á veikum vængjum reynir að komast á hærri reikistjörnur“.
“Musica Instrumentalis” var vinsæl á endurreisnartímanum. Hljóðfæraleikur og söngur átti að endurspegla hugarástand manneskjunnar og þaðan kemur nafnið “Musica Humana”. Við það endurómaði hljómur alheimsins. Markmið flytjenda og áheyrenda var að reyna að nálgast þennan hljóm: “Musica Mundana”.
Í byrjun 16. aldar var sönglagaformið frottole vinsælt. Lútan var mikils metin sem hljóðfæri og gaf franski útgefandinn Pierre Attaignant út mikið af lútutónlist eftir helstu tónskáld þess tíma. Síðar á öldinni varð vihuela mjög vinsælt hljóðfæri á Spáni. Tónlist frá þessu tímabili er mjög falleg og skemmtileg og því mega áheyrendur eiga von á ánægjulegum og öðruvísi tónleikum. Tónlistin leitast við að endurskapa ýmsar mannlegar hugsanir og tilfinningar sem er forvitnilegt fyrir okkur að kanna. Tríóið mun einnig spila á Listasafni Sigurjóns í Reykjavík, í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði, og í Vestmannaeyjum. Aðgangseyrir er 1000 og frítt fyrir 16 ára og yngri.



