Menning
Björn Arnarson
Björn Arnarson

07.06.2004

Fuglaskoðunarferð á vegum Menningarmiðstöðvar

Á morgun þriðjudag bíður Menningarmiðstöð upp á fuglaskoðunarferð fyrir ungdóminn undir leiðsögn Björns G. Arnarsonar sem er einn af okkar helstu fuglasérfræðingum. Þetta er fyrsta ferðin fyrir ungdóminn í sumar á vegum Menningarmiðstöðvarinnar og líkt og í fyrra þá verður farið í sveitina, á lúruveiðar svo eitthvað sé nefnt. Í fuglaskoðunarferðinni á morgun verður gengið inn eftir Ægisíðunni og í ferðinni má reikna með að sjá all flesta mófugla svo sem stelk, tjald og þúfutittling. Ef heppnin er með þátttakendum þá er aldrei að vita nema að hægt sé að koma auga á flækingsfugla sem eru nokkuð mikið á ferðinni. Björn veit um tvö heiður sem hann ætlar að sýna hópnum, hvaða hreiður það verða kemur á óvart. Í dag eru komnir ungar hjá flestum æðarfuglum svo sem öndum og gæsum. Þrestirnir eru mjög duglegir því ungarnir hjá þeim eru byrjaðir að æfa flugið og eru þrestirnir byrjaðir að verpa aftur en þess má geta að þeir verpa allt að þrisvar sinnum á sumri.

Þeir sem ætla að með í ferðina skrá sig í síma 470 8050. Ferðin kostar 500 krónur og er mætt við Gömlubúð.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica