Frá Pakkhúsinu lá leiðin . . .
Elstu myndverk Svavars Guðnasonar í eigu Listasafns Austur-Skaftafellssýslu verða til sýnis í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði yfir páskana.
“Ég tók hverja túpu fyrir sig og hélt á henni, eins og ég hefði náð handtaki á hamingjunni ...” Þannig lýsir Svavar fyrstu kynnum sínum við litatúpur í viðtali við Matthías Johannessen í Nýju Helgafelli, árið 1959. Túpurnar voru pantaðar beint frá Englandi, af félögum á Höfn, þeim Bjarna Guðmundssyni, Höskuldi Björnssyni og Svavari Guðnasyni. Þeir höfðu kynnst málaralist af listmálurum sem komu til Hafnar að mála, þeim Ásgrími Jónssyni og Kjarval sem og Jóni Þorleifssyni frá Hólum í Nesjum, sem 1918 sigldi til Kaupmannahafnar til að nema málaralist.
Svavar Guðnason fæddist á Höfn í Hornafirði 1909. Hann var sonur hjónanna Ólafar Þórðardóttur og Guðna Jónssonar, veitingamanns í Heklu. Hann ólst upp við venjulega leiki, nám og störf þeirra tíma, á gestkvæmu heimili í upprennandi þéttbýlisstað. Fæðingarár Svavars voru íbúar Hafnarkauptúns 36 en hafði fjölgað í 129 árið sem hann fer suður til náms í Samvinnuskólanum og voru orðnir 170 árið 1930 þegar hann flyst í burtu.
Sýningin er virðingarvottur við Ástu Eiríksdóttur, ekkju Svavars, sem með gjafmildi og af rausnarskap hefur gefið Sveitarfélaginu Hornafirði yfir 100 verk eftir mann sinn. Þá eru einnig til sýnis nokkur verk frá fyrstu Kaupmannahafnar árum Svavars, sem Herdisi Dahlman Olsen, hefur gefið.
Með þessari sýningu vill Menningarmiðstöð Hornafjarðar kynna upphafsferil merks manns sem héðan hélt af stað að láta draum sinn rætast. Sýningin er opin 8.–12. apríl, kl. 14-17.
Byggðasafnið í Gömlubúð verður einnig opið þessa daga á sama tíma, þar sem sjá má ný aðföng í bland við annað.
Sýningarnar eru opnar kl. 14 – 17 og er aðgangur ókeypis.



