Menning
María og Guðrún starfsmenn MMH dáðst að nýja kerfinu
María og Guðrún starfsmenn MMH dáðst að nýja kerfinu

05.04.2004

Nýtt landskerfi bókasafna

5. apríl, tóku flest stærri almenningsbókasöfn landsins nýtt landskerfi bókasafna, Gegni, í notkun. Þeirra á meðal er Menningarmiðstöð Hornafjarðar í Nýheimum. Kerfið hafði áður verið tekið í notkun í háskóla- og sérfræðibókasöfnum. Gegnir leysir af hólmi eldri bókasafnskerfi og sameinar öll bókasöfn landsins í einu kerfi. Með því aukast möguleikar á samnýtingu á gríðarmiklum bóka- og upplýsingakosti á bókasöfnum landsins. Fyrstu daga hins nýja kerfis má búast við truflunum á afgreiðslu bókasafnsins í Nýheimum en eftir páska vonast starfsmenn til þess að vera búnir að ná góðum tökum á kerfinu.

Almenningur getur nýtt sér leitaraðgang í Gegni á vefnum www.gegnir.is

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica