Menning
Helga Braga og 100% Hitt
Helga Braga og 100% Hitt

16.03.2004

Helga Braga með 100% Hitt til Hafnar

Sýning Helgu Brögu "100% Hitt" sem sýnd hefur verið í tónlistarhúsinu Ými í vetur er á leiðinni til Hafnar í Hornafirði. Ein sýning er fyrirhuguð í Sindrabæ laugardaginn 3. apríl. Forsala miða er í Menningarmiðstöð Hornafjarðar -bókasafninu og er miðaverð kr. 2.200.-. “Hitt“ er íslensk uppfærsla á uppistandi austurríska atferlisfræðingsins Bernhards Ludwigs um hvernig á að öðlast fullkomna kynferðislega ófullnægju.

Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir nálgast þetta viðkvæma mál af svo hárfínni og vísindalegri nákvæmni að áhorfendur vita hreinlega ekki hvort þeir eiga að hlæja, gráta, skrifa lesendabréf eða bara drífa sig heim í rúmið. „Hitt“ er fullkomlega örugg lækning við húmorsleysi, tepruskap og fjölmörgum öðrum andlegum kynsjúkdómum.
100% Hitt hefur fengið góða dóma og þegar það var sýnt í Valhöll, Eskifirði var húsfyllir. Karl Heimir Búason framkvæmdastjóri Valhallar sagði eftir þá sýningu við Fréttablaðið “Fólkið hér fyrir austan er ennþá brosandi út að eyrum”.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica