100 ára afmæli Sigurður Filippussonar
Í dag hefði Sigurður Filippusson "Eldsmiðurinn" orðið 100 ára og af því tilefni verður mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar Eldsmiðurinn, sem gerði Sigurð ódauðlegan sýnd í Nýheimum kl.14, 15 og 16. Myndin var framleidd 1981 og er 18 mín. að lengd. Sigurður fæddist í Digurholti á Mýrum 6.mars 1904 og ólst þar upp en flutti að Hólabrekku um 1940. Á yngri árum starfaði Sigurður vetrarlangt hjá Vélsmiðju Jóhanns Hanssonar á Seyðisfirði og taldi sig hafa af þeirri veru mikið gagn enda voru þar snemma á öldinni orðlagðir járnsmiðir og vélamenn eins og alla tíð síðan. Á Hólabrekku byggði Sigurður sér lítið hús sem bæði var svefnsstaður hans og smiðja. Sigurður lést 27. febrúar 1989, 85 ára að aldri en hann hafði áður ánafnað Byggðasafninu eigur sínar.
Herbergjaskipan litla hússins á Hólabrekku er búið að endursmíða í kjallara Byggðasafnsins og ber þar að sjá innanstokksmuni Sigurðar og mikið verkfærasafn en meðal þeirra eru verkfæri sem Sigurður smíðaði sjálfur. Byggðarsafnið verður opið í dag frá kl. 14-18.
Sjá myndir frá heimili Sigurðar, endurgert á Byggðasafninu



