Menning
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson

05.03.2004

Þórbergur og esperantó

Íslenska esperantosambandið og Þórbergssetur halda málþing um Þórberg Þórðarson í Norræna húsinu 12. mars næstkomandi á afmælisdag meistarans. Málþingið stendur frá kl. 16:00-19:00. Meðal annars verður lesið upp úr þýðingum á verkum Þórbergs sem hann skrifaði á esperanto. Matthías Johannessen skáld les kafla úr bók sinni Í kompaníi við allífið. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur flytur erindi sem hann kallar, Hvað vildi Þórbergur? Og Jón Hjartarson leikari stígur á svið og flytur efni úr Sálminum um blómið. Kristján Eiríksson bókmenntafræðingur hefur rannsakað handritasafn Þórbergs í Landsbókasafninu. Þar eru mörg handrit skrifuð á esperanto sem fáir hafa séð.

Á málþinginu verður meðal annars lesið úr þýðingum sumra þeirra sem ekki hafa áður komið fyrir almennings sjónir. Fréttir af málþinginu og dagskrá verða birt á vef Þórbergsseturs thorbergur.is. Vonandi sjá sem flestir velunnarar Þórbergs sér fært að koma við í Norræna húsinu á afmælisdegi meistarans og njóta dagskrárinnar.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica