Tuttugu milljónir króna til 57 verkefna
Fréttatilkynning
Menningarráð Austurlands úthlutaði í dag 19,8 milljónum króna til menningarstarfs á Austurlandi við hátíðlega athöfn á Hótel Framtíð á Djúpavogi. Þetta er í fjórða sinn sem úthlutað er styrkjum samkvæmt samstarfssamningi menntamálaráðuneytisins og sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál. Alls bárust 126 umsóknir um styrki og var ákveðið að úthluta til 57 verkefna. Hæsti styrkurinn var að upphæð 1,5 m. kr. en sá lægsti 50 þús. kr.
Menningarráð Austurlands lagði áherslu á þrennt við þessa úthlutun: nýsköpun, samstarf og ungt fólk. Sótt var um framlög til margra nýrra og metnaðarfullra verkefni og ljóst að framundan er líflegt menningarár á Austurlandi. Nýr menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, afhenti 19 hæstu styrkina, en þá hlutu að þessu sinni og er þeim raðað upp eftir upphæð, umsækjandi og verkefni:
- 1.500.000 Þórbergssetur, Hala í Suðursveit, Hornafirði Sýningar um ævi Þórbergs Þórðarsonar.
- 1.000.000 Safn Ríkarðs Jónssonar, Djúpavogi Ný verkefni við eflingu safnsins,
Skógræktin Hallormsstað og samstarfsaðilar Fantasy Island, alþjóðlega stórsýning
Safn Jósafats Hinrikssonar, Fjarðabyggð Uppbygging á safninu. - 800.000 Kjarvalsstofa, Borgarfirði Álfheimar, ný sýning í Kjarvalsstofu, Vopnafjarðarhreppur Aðstaða fyrir menningarviðburði, Eiðar ehf, Austur-Héraði Listasmiðja undir stjórn Ólafs Elíassonar.
- 700.000 Blús-, Rokk og Jassklúbburinn, Fjarðabyggð Ýmis tónlistarflutningur.
- 600.000 Menningarmálanefnd Vopnafjarðar Skáldakvöld og fleiri menningarviðburðir, Lunga, listahátíð ungs fólks á Austurlandi Vetrar og sumar Lunga.
- 500.000 Jöklasetrið á Höfn Hönnun og undirbúningur nýrrar sýningar, Skaftfell menningarmiðstöð, Seyðisfirði Sumarsýning, Kammerkór Austurlands, Austur-Héraði Jóhannesar-Passía eftir Bach, SMS og samstarfsaðilar, Austurbyggð Austfirsku skáldin, tónlist og kveðskapur, Óperustúdíó Austurlands, Austur-Héraði Klassísk söngkeppni nema, Nemendafél. FAS og samstarfsaðilar, Hornaf. Ungt fólk, frumkvæði og menning, Georg Halldórsson, Fjarðabyggð Óperan Carmen, Bláa kirkjan og Ceilidh hátíð, Seyðisfirði Sumartónleikar 2004 og Ceilidh hátíð, B.G. Bros, Fjarðabyggð Trúbadorahátíð og Kúbukvöld
Samstarf ríkis og sveitarfélaga á Austurlandi
Hinn 14. maí, 2001 undirrituðu öll sveitarfélögin á Austurlandi samstarfssamning um menningarmál. Tilgangur samningsins er að efla menningarstarf á Austurlandi og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaga á Austurlandi við slíkt starf í einn farveg. Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin gerðu með sér samning um framlög til menningarverkefna í fjórðungnum á árunum 2002-2004 og ber Menningarráð Austurlands ábyrgð á úthlutun þeirra.
Menningarráð Austurlands
Menningarráð Austurlands er sjálfstætt ráð kosið af fulltrúum sveitarfélaga á Austurlandi. Hlutverk ráðsins er að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, hvetja til samstarfs og faglegra vinnubragða og stuðla að almennri vitund og þekkingu um málaflokkinn. Menningarráð Austurlands úthlutar fjármagni til menningarverkefna á Austurlandi, samkvæmt samningi ríkis og sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál og hefur eftirlit með framkvæmd þess samnings.



