Menningarráð Austurlands úthlutar styrkjum
Úthlutun á styrkjum frá Menningarráði Austurlands fer fram á Hótel Framtíðin, Djúpavogi í dag og hefst athöfnin kl.13:00 með fundi um menningarmál. Á menningarfundinum verður kynnt samstarf við Vesterålen í Noregi og Listahátíð í Reykjavík 2004. Meðal þeirra sem flytja munu erindi eru Erik Brugge menningarfulltrúi í Vesterålen og Katarine Ström sem mun kynna áhugavert verkefni fyrir unga listnema, “Tilbageströmmen”. Erik og Katarine komu í heimsókn í gær til Menningarmiðstöð Hornafjarðar þar sem þau kynntu starf sitt í Noregi. Úthlutun menningarstyrkjanna fer síðan fram kl. 15:30. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra mun afhenda menningastyrkina.
Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri Djúpavogshrepps mun stýra dagskránni í dag. Formaður Menningarráðs Austurlands er Gísli Sverrir Árnason. Að lokinni úthlutun menningarstyrkja mun Menntamálaráðherra opna vef um Ríkarð Jónsson.



