Metaðsókn á Vegavinnutónleikana í Nýheimum
Vegavinnutónleikarnir sem fram fóru í Nýheimum sl. þriðjudagskvöld hafa fengið mikið lof þeirra sem á hlýddu. Nánast hvert sæti var setið og þarna voru áheyrendur á öllum aldri. Þetta er mesta aðsókn að einstökum viðburði í Nýheimum sagði Inga Jónsdóttir hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Þetta voru þrír sérstakir tónleikar með flytjendum frá Íslandi, Ítalíu og Bretlandi. Inga segir að ítalska söngkonan Fiamma ásamt hljómsveit hafi vakið mikla hrifningu og lokalag þeirra verið ótrúlega flott, fjölhæfni þeirra mikil og þau hafi hrifið fólkið gersamlega.
Vegavinnutónleikarnir byrjuðu upphaflega sem keppni meðal ungra tónlistarmanna sem semja tónverk og flytja þau sjálf. Þetta er Evrópuverkefni og þau þrjú sem valin voru til þátttöku á Íslandi voru Hera Hjartardóttir, Santiagó og Geir Harðarson. Í haust fóru þau umhverfis landið og héldu tónleika á mörgum stöðum m.a. í Nýheimum. Að lokinni tónleikaferðinni var Hera valin til áframhaldandi tónleikahalds með þeim sem valdir voru á Ítalíu og Bretlandi og komu fram ásamt Heru í Nýheimum. Héðan fer tónlistarfólkið til Ítalíu og þaðan til Bretlands og verða fjórir tónleikar í hverju landi. Svona þriggja landa hópar sem koma fram saman eru víða um Evrópu og er verkefnið styrkt af Evrópusambandinu. Inga segir mikil aðsókn, góðar móttökur og mikil stemning á tónleikunum í nóvember hafi ráðið því að Höfn varð fyrir valinu fyrir aðal vegavinnutónleikana. Hinir staðirnir eru Stokkseyri, Keflavík og Reykjavík.



