Um safnið

Um safnið

Saga Byggðasafnsins


Sögu Byggðasafns Austur-Skaftafellssýslu má rekja allt til ársins 1964 er sýslunefnd kaus fimm manna nefnd til að vinna að undirbúningi safnsins. Byggðasafninu var svo valinn staður í Gömlubúð þar sem hún hafði verið færð frá hafnarsvæðinu og að Sílavík. Nú stendur til að færa Gömlubúð aftur á upprunalegan stað við hafnarsvæðið á Höfn en saga hússins nær lengra aftur.

Gamlabúð var reist 1864 við Papós í Lóni. Verslun hófst á Papósi um 1861 og árið 1863 löggilti Friðrik VII. Konungur Papós sem verslunarstað. 1864 var Krambúðin reist og þjónaði sem verslunarhús meðan verslun var rekin á Papósi. Eftir að verslun lagðist þar af var húsið flutt til Hafnar og kallað Gamlabúð.

Gamlabúð var flutt frá Papósi 1897 og var reist við Hafnarvík, í nágrenni Pakkhúss og Kaupmannshússins. Gamlabúð var aðalverslunarhúsið á Höfn frá upphafi byggðar til 1937. Sölubúð var í austurhluta neðri hæðar en kornvörur, kaffi, sykur of fleira var geymt í sekkjum í vesturhluta neðri hæðar og á lofti. Í kjallara var geymt salt og ýmislegt sem þoldi langa geymslu. Árið 1977 var Gamlabúð flutt á nýjan leik og var húsinu fundinn staður við Sílavík.

Árið 1980 opnaði sýning Byggðasafnsins í húsinu og hefur Gamlabúð verið miðstöð starfsemi Byggðasafnsins frá þeim tíma. Rætt hefur verið um að flytja Gömlubúð aftur niður að Hafnarvík og er húsinu ætlað að verða hluti uppbyggingar gamalla húsa sem fyrirhuguð er á hafnarsvæðinu. Gamlabúð á sér því merkilega sögu.

Safnverðir Byggðasafnsins hafa iðulega unnið af miklum áhuga og alúð við varðveislu minja og muna úr sögu héraðsins. Fyrsti safnvörðurinn var Þorsteinn Þorsteinsson og hóf hann störf [árið], Gísli Arason var starfsmaður frá [ártal til og frá]- Núverandi starfsmaður er Björn G. Arnarson ehn hann hóf störf hjá safninu [ártal] 

 

 

Stefnumótun


 

Stefnumótun í menningar- og safnamálum Hornafjarðar 2007-2017 var samþykkt á fundi Menningarmálanefndar 14. febrúar 2007 og staðfest í bæjarstjórn 17. apríl 2007. Menningarmiðstöð Hornafjarðar skiptist í nokkrar deildir og er Byggðasafn ein þeirra. Samstarf á milli deilda er mikið og grunnur að fjölbreyttu og öflugu starfi Byggðasafns. Má þar nefna samstarf við Skjalasafn en sýningar, þar sem sýndir eru munir frá báðum söfnum hafa notið mikilla vinsælda.

 

Byggðasafn - Stefnumótun

 

Framtíðarsýn

Byggðasafn Austur-Skaftafellssýslu efli vitund fólks um sérkenni og menningararf héraðsins. Í Byggðasafni sé leitað nýrra leiða í safnastarfi, aðdráttarafl og   sérstaða Byggðasafns verði aukin enn frekar fyrir heimamenn og gesti.

 

Kjörorð

Metnaðarfullt menningarstarf

Góð þjónusta

Hagkvæm nýting fjármuna

Lýðræðisleg stjórnun

Jafnræði og ánægja í starfi

 

Meginmarkmið og leiðir

 

Sögu og sérstöðu héraðsins sé ávallt sýnd virðing og mannvænt umhverfi haft að leiðarljósi

 

Leiðir:

¨      Verndun menningarminja byggðarlagsins

                        Ýtarleg skráning þeirra minja og muna sem eru í sveitarfélaginu

                        Merking minja og muna

                        Viðhald / varðveisla minja og muna

¨      Varðveisla menningarminja byggðarlagsins

                        Þjónustuhúsnæði sem hýsir þá muni sem til varðveislu eru, við aðstæður sem tryggja sem best ástand þeirra

                        Vandaður frágangur muna, umbúðir og geymslurými tryggi að þeir  munir sem varðveittir eru skilist til komandi kynslóða

¨      Kynning menningarminja byggðarlagsins

                        Öflug samvinna milli Byggðasafns og skóla

                        Fræðsluefni fyrir alla aldurshópa, íbúa og gesti

                        Gerð göngukorta um byggðaþróun og menningarminjar

¨      Húsnæði Byggðasafns, Gamlabúð, verði flutt á Hafnarsvæðið

¨      Sjóminjasafni verði fundið framtíðar sýningar– og þjónusturými

¨      Gera sögustaði og söguslóðir aðgengilegar almenningi með merkingum og leiðarvísum

¨      Formleg söfnunar– og sýningarstefna

¨        

  Byggðasafnið standi fyrir fræðslu um menningararf og sérkenni héraðsins

 

Leiðir:

¨      Fræðsluefni fyrir börn

¨      Fræðsluefni fyrir fullorðna

¨      Kynningar fyrir innlenda og erlenda ferðamenn

¨      Greinargóðar merkingar og kynningar fyrir almenning

¨      Skipulagðar göngur í samvinnu við félög og einstaklinga

¨      Upplýsingar og kynningarefni á erlendum tungumálum

¨      Fjölbreytt og frumleg framsetning

 

Starf Byggðasafns einkennist af þrótti og metnaði

 

Leiðir:

¨      Gera Gömlubúð að miðpunkti safnastarfs í héraðinu

¨      Skapa forsendur fyrir nýsköpun í safnastarfi

¨      Vera þátttakandi í samstarfi annarra byggðasafna og stofnana, innan héraðs og utan

¨      Nýta umhverfi Gömlubúðar og auka aðdráttarafl safnsins fyrir heimamenn og gesti

¨      Gamlabúð verði miðpunktur gamla hafnarsvæðisins og þess menningarumhverfis sem þar verður byggt upp

¨      Pakkhús verði eflt sem sýningar-, funda-, og ráðstefnusalur

¨      Almenn menningarstarfsemi í Pakkhúsi verði efld

 

Byggðasafn gegni fjölþættu hlutverki sínu á framúrskarandi hátt

 

Leiðir:

¨      Ánægðir starfsmenn, góð vinnuaðstaða

¨      Vandað starf á sviði varðveislu, miðlunar, rannsókna og þjónustu

¨      Vandað þjónusturými, geymslur, vinnusvæði og vinnuaðstaða

¨      Góð og fjölbreytt sýningaraðstaða

¨      Fjölbreytt og traust fagþekking

¨      Virk þátttaka í uppbyggingu gamla hafnarsvæðisins

¨      Vatnstankinum gamla viðhaldið, komið upp merkingum, umhverfi fegrað og göngustígar lagðir

¨      Fundarhúsinu í Lóni viðhaldið, umhverfi snyrt og húsið nýtt undir       menningarstarfsemi

¨      Gömlu verbúðinni í Miklagarði viðhaldið, komið upp merkingum og         aðgangur gesta tryggður

¨      Unnið að fornleifaskráningu

¨      Forleifarannsóknir efldar

¨      Lokið við húsakönnun í sveitarfélaginu og sú skýrsla nýtt til stuðnings í skipulagsmálum

 

Byggðasafn sé aðgengilegt öllum íbúum sveitarfélagsins

 

Leiðir:

¨      Aðgangur gesta bættur og hugað sérstaklega að aðgengi fatlaðra

¨      Opnunartími sem hæfir markhópum

¨      Kannanir á starfsemi Byggðasafns og óskum notenda

 

 

Byggðasafn – Söfnunar- og sýningarstefna


Menningarmiðstöð Hornafjarðar - Byggðasafn 
Hlutverk Byggðasafns er að safna og sýna þverskurð af mannlífi í héraðinu. Áhersla er lögð á skaftfellskt efni og þá þætti sem einkennt hafa þetta byggðarlag eða gert aðstæður þess frábrugðnar aðstæðum annarra  byggðarlaga.

 

Söfnunarstefna
Byggðasafn safnar minjum sem gefa heildstæða mynd af sögu og mannlífi héraðsins. Byggðasafni er ætlað að safna minjum sem lýsa heimilishaldi, félagslífi, samgöngum og atvinnuháttum, jafnt til sjávar og sveita. Safninu er ekki skylt að taka við gjöfum ef kvaðir fylgja.

 

Sýningarstefna
Byggðasafn skal kappkosta að kynna starfsemi sína fyrir sem flestum og vera til þess búið að þjóna gestum sínum sem best. Sýningar safnsins eiga að auka aðgengi og áhuga almennings á sögu héraðsins og mannlífi.

 

Útlán safngripa

Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar og safnvörður Byggðasafns ákveða hvort og hvenær má láta gripi af hendi eða skipta við önnur söfn. Lánþegi undirritar þar til gerðan lánssamning.

 

Samþykkt á fundi menningarmálanefndar Hornafjarðar 14.02.2007

 

 

 

Starfsmenn


Starfsmenn Byggðasafns eru:

Björg Erlingsdóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðvar bjorgerl@hornafjordur.is

Björn G. Arnarson safnvörður, bjorna@hornafjordur.is

 

 

 




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica