Gamlabúð
Aðalsafnhús byggðasafnsins er Gamlabúð. Húsið var upphaflega byggt sem verslunarhús á Papósi í Lóni árið 1864 og er tvær hæðir og kjallari. Húsið var flutt til Hafnar á upphafsári byggðar þar, 1897 og gegndi hlutverki verslunarhúss þar í 80 ár eða þar til það var flutt á núverandi stað árið 1977. Aðsókn að Gömlubúð hefur verið sem hér segir sl. 12 ár:
| Ár | Gestir |
|
| 1988 | 1.322 | |
| 1989 | 1.431 | |
| 1990 | 1.312 | |
| 1991 | 1.657 | |
| 1992 | 2.048 | |
| 1993 | 2.329 | |
| 1994 | 1.987 | |
| 1995 | 2.213 | |
| 1996 | 1.614 | |
| 1997 | 1.602 | |
| 1998 | 1.791 | |
| 1999 | 2.293 | |
| 2000 | 2.406 |
Frá því Gamlabúð var flutt árið 1977 á núverandi stað við Sílavík hefur annað slagið komið upp umræða um að færa húsið á ný niður að Hafnarvík þar sem það stóð í 80 ár (1897-1977). Menningarmálanefnd hefur tekið jákvæða afstöðu til þessa flutnings með eftirfarandi samþykkt sinni 8. desember 1999.
Menningarmálanefnd Hornafjarðar mælir með því að gert verði ráð fyrir flutningi Gömlubúðar á sinn upprunalega stað við höfnina eða sem næst því. Þetta er í samræmi við hugmyndir nefndarinnar um uppbyggingu safnasvæðis við höfnina, í elsta hluta byggðarinnar á Höfn. Nefndin telur æskilegt að stefnt verði að flutningnum á næstu árum. Menningarmálanefnd ítrekar ennfremur fyrri afstöðu sína varðandi varðveislu Miklagarðs og telur að með ákvörðun um staðsetningu Gömlubúðar við höfnina sé verið að staðfesta þann vilja bæjaryfirvalda að varðveita hina elstu þéttbýlismynd á staðnum. Nefndin bendir einnig á að æskilegt væri að tryggja húsnæði og útisvæði í nágrenni þessa svæðis fyrir ýmsa starfsemi byggðasafnsins sem ekki hefur öruggt húsaskjól í dag svo sem vaxandi búvéla-, bifreiða- og tækjasafn. Í þessu sambandi má einnig nefna hugsanlega húsnæðisþörf vegna safns Sverris Schevings sem væntanlegt er sem gjöf til sveitarfélagsins.
Aðalskipulag Hornafjarðar fyrir árin 1998-2018 sem staðfest var í ársbyrjun 2001 styður mjög við þessa afstöðu en í aðalskipulaginu er gert ráð fyrir að við höfnina verði skipulagt safnasvæði.



