Menning
Eyrún Axelsdóttir - Veggurinn minn
Eyrún Axelsdóttir - Veggurinn minn
Eyrún Axelsdóttir - Samtal

02.04.2013

Veggurinn minn

Vegginn minn á Eyrún Axelsdóttir

Verkið heitir Samtal og er málað 2012. Það er hluti af stórri seríu og var hluti af sýningu sem haldin var í desember 2012 sem hét „Á besta aldri“. Myndin er máluð með olíulitum á pappa og ramminn er smíðaður af hjónunum Eyrúnu og Sigurjóni. hugmyndin er Eyrúnar, en Sigujón hjálpaði henni að útfæra hana.

Undanfarin ár hafa þessir fuglar verið Eyrúnu hugleiknir, enda kallar hún þá fuglana sína. Nafnið á verkinu vísar til þess að samtal getur átt sér stað milli eins eða fleiri án sýnilegs sambands.

Samtal er í eintali, milli tveggja eða fleiri án augnkontakts eða snertingar hverskonar. Samtal getur verið innilegt eða yfirborðskennt allt eftir milli hverra samtalið á sér stað.

Fulgarnir sem mótív upphefja samtalið eða gerir það óskiljanlegt, allt eftir því hvað hverjum og einum finnst. Nú eða þá að allt er þetta tóm vitleysa og þvæla.

Eyrúnu finnst gaman að vinna með óhefðbundinn efnivið og er endurnýting henni ofarlega í huga. Að mála er langskemmtilegast og sjá hvernig verkið þróst á meðan unnið er. Efniviðurinn fyrir utan málninguna er ekki merkilegur oft á tíðum, enda finnst Eyrúnu það ekki skipta máli. Það sem skiptir máli er að vinnan gefi henni það sem hún leita eftir og að hún sé sátt við útkomuna. Hugmynd verður að veruleika.


Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica