Menning
Rafnkell Þorleifsson í brúnni áHrönn SF
Rafnkell Þorleifsson í brúnni áHrönn SF
Rafnkell Þorleifsson í brúnni áHrönn SF
Mynd 3 af 3
1 2 3

08.02.2013

Myndir af fiskiskipum sem gerð hafa verið út frá Hornafirði

Myndir af fiskiskipum

Hafin er söfnun mynda af öllum fiskiskipum, stórum sem smáum, sem gerð hafa verið út frá Hornafirði. Einnig er leitað eftir myndum sem varpa ljósi á líf og starf sjómanna á hafi úti.

Vitað er að skipa- og bátamyndir liggja víða: í albúmum, hanga uppi á vegg, geymdar í kössum, í tölvum o.s.frv. Það er því ósk undirritaðs að allir, sem telja sig eiga slíkar myndir í sínum fórum, hafi samband við hann, símar 861-3185 og 478-1479, netfang: stefan@hornafjordur.is

Myndirnar verða færðar yfir á tölvutækt form til varðveislu og þeim skilað að því verki loknu. Við varðveislu myndanna verður ljósmyndara/eigenda getið ef þeir eru þekktir.

Myndirnar verða varðveittar hjá Héraðsskjalasafninu. Ráðgert er að afraksturinn verði aðgengilegur almenningi en ekki hefur verið tekin ákvörðun um með hvaða hætti það verður.

Samhliða þessu verkefni er einnig ætlunin að safna sögum og vísum sem fjalla um sjómenn og þeirra líf. Þar er reyndar rennt blint í sjóinn en þó er ljóst að margir sjómenn kunna frá ýmsu að segja bæði í bundnu og óbundnu máli.

Stefán Ólafsson

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica