Menning
Skemmtifélagið
Skemmtifélagið
Skemmtifélagið - Eitt lag enn 1
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

11.10.2012

Eitt lag enn frumsýnt um síðustu helgi

Hornfirska Skemmtifélagið sýnir Eitt lag enn

Hornfirska Skemmtifélagið frumsýndi síðasta laugardag haustsýninguna Eitt lag enn við frábærar undirtektir.

Þetta er ellefta árið sem að Skemmtifélagið heldur sýningu af þessu tagi en þemað í ár er hið geysivinsæla Eurovision þar sem tekin eru fyrir vinsæl lög úr keppninni í gegnum tíðina, bæði íslensk og erlend.

Sýningar félagsins hafa gengið mjög vel í gegnum tíðina og hafa verið mjög vinsælar hjá heimamönnum, sem og öðrum. Eitt lag enn verður sýnt á Hótel Höfn næstu fjóra laugardaga, en uppselt er á næstu tvær sýningar og örfáir lausir miðar eru á síðustu tvær.

Hornfirska Skemmtifélagið þakkar góðar móttökur og hlökkum til að sjá alla í syngjandi sveiflu á Hótel Höfn

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica