Afmælisráðstefna og heimsókn mennta- og menningamálaráðherra
Katrín Jakobsdóttir mun heimsækja ýmsar mennta og menningastofnarnir Hornafjarðar miðvikudaginn 3. október og kynna sér málefni þeirra ásamt því að sitja afmælisráðstefnu FAS og Nýheima.
Allir eru hvattir til að mæta á afmælisráðstefnuna kl.14:45.
Gestir afmælisráðstefnu FAS og Nýheima eru Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Jón Torfi Jónasson frá Háskóla Íslands.
Afmælisráðstefna FAS og Nýheima 3.október dagskrá:
Kaffi í Nýheimum kl:14:45
Dagskrá hefst kl. 15:15
1. Staða og framtíð FAS, Eyjólfur Guðmundsson, skólameistari FAS.
2. Staða og framtíð Nýheima Hjalti Þór Vignisson Bæjarstjóri Hornafjarðar.
3. Lærdómssamfélagið Hornafjörður Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri Hornafjarðar.
4. Mennta- og menningarmál á landsbyggðinni, Katrín Jakobsdóttir, Mennta og menningamálaráðherra og fulltrúi frá Háskóla Íslands Jón Torfi Jónasson.
5. Umræður
Fundarstjóri: Árdís Halldórsdóttir
Allir hjartanlega velkomnir.
BB



